Ljós og sannleikur - 01.02.1920, Side 2

Ljós og sannleikur - 01.02.1920, Side 2
9o Ljós og sannleikur Dómar drottins. Nói óttaöist eigi þann dóm Drottins er ganga skyldi yfir heiminn á hans dögum. Ark- arbyggingin minti sí og æ á þann ægilega dóm. En sú bygging var Nóa og hans fólki til huggunar, þótt hún mætti vera hinum guölausu til skelfingar. Og þó aö Nóa blöskraöi ilska mannanna og að hugsa til dómsins, er þeir áttu í vændum, þá varð honum jafnan hughægra, er honum var litið á björgunarskipið sitt, og eftir því, sem á lei'ð arkarsmíöið, nálgaöist dóm- urinn. En meöan á smiöinu stóö, átti hann iðu- lega viötal viö Guð. Jesús sagöi: „Eins og var á dögum Nóa, svo mun og veröa á dögum mannsins sonar. Þá veröa uppi Nóa likar, menn, sem horfa á björg- unarskip í smíðum, sem ætlaö er handa þeim. og horfa á heiminn meö sorg og viðbjóði. Hver var algengasta syndin á dögum Nóa? Þeir átu og drukku, kvæntust og giftust, en enginn hugsaði til Guös. En mesta syndin var þaö, aö þeir létu viðvörunarorðin, sem vind um eyrun þjóta, — vantrú þeirra og efi um þann boðskap, sem réttlætisprédikarinn Nói flutti þeim. Hiö sama á sér stað á dögum mannssonar- ins, á undan komu Krists til dóms. Mesta syndin á dögum Nóa var þaö, að þeir vildu engar bjarg- ir þiggja, þeir vildu eigi komast hjá dóminum. Það er boðað, aö Jesús sé hjálpræðið, að hann sé vegurinn til að komast hjá dauða og dómi, en honum er hafnað, hann er fyrirlitinn. Eins og það var, svo mun það verða. Dár mun verða dregin að þeim, sem eru líkir Nóa. Prédikararnir á dögum Nóa, gátu ekki ein- um einasta af þeim, sem á þá hlýddu, snúið. Vafalaust hafa þeir flutt samtíðrmönnum sin- um góðan boðskap. En enginn vissi fyrri til en flóðið kom og drekti þeim öllum. Og hvernig var á dögum Lots ? Guði þókn- aðist að ráðgast við vini sína. Abraham talaði við Guð og Drottinn talaði við Abraham eins og vinur við vin. Abraham var órótt út af eyð- ingu borganna á sléttunni, en út af sjálfum sér var hann ókvíðinn. Hann bar örugt traust til Drottins, og Drottinn bar traust til Abrahams, því hann var jafn öruggur, hvað sem að hendi bar og hræddist eigi dóminn, sem Drottinn kvað upp yfir borgunum. Hann gekk eigi fyrir Guð í bæn sjálfs síns vegna, heldur borganna og gerðist talsmaður þeirra. Guð hefir jafnan birt vinum sínum ráð sitt og" vilja. Hann birti postulum sínum það og síð- an öðrum, alt fram á þennan dag, Guð vill birta ráð sitt, hann vill, að menn ráðgist við sig. Huggarinn, Guðs heilagi andi, hefir ver- ið sendur, til að upplýsa, vekja og opinbera ráð Guðs. „Það sem verða mun, mun hann birta yður“. Hann er huggari Guös vina, hann er besti kennarinn, sem Guð getur sent; hann er huggari hvers einstaks manns, er vill við hon- um taka, hann lýkur upp orði Guðs fyrir þeim, hann fræðir hverja sál; hann gefur skilning á rás viðburðanna, hann bendir á þá dóma Guðs. er koma fnunu yfir þá, sem þverskallast. Hann gerar marga að spámönnum Guðs enn þann dag í dag. Nú rekur hver spádómurinn annan. Enn eru ritaðar spádómsbækur. Og hvers vegna? Af því að þess er brýn þörf, náðartíminn er orðinn stuttur. Vonska heimsins fer sívaxandi. Nú er sá boðskapur fluttur hvarvetna, að koma Drottins sé í nánd. Enn er það eins og forðum. Nú er nýir menn að byggja nýjan Babels-turn, er taki til himins. Það er mannlegt bræðrafélag, sem verið er að byggja! „Gott og vel, vér skulum byggja oss borg og turn, sem standa skal um aldur og æfi og allir skulu vera ein þjóð.“ En þegar Guð lítur niður, þá sundr- ast alt og tvístrast. Þeir byggja sinn turn og verður vel ágengt og Guð bíður, þangað til þeir hafa náð hámarki sínu — þá tvístrar hann bygg- ingarmeisturunum. Og á hvern hátt? Ritningin segir oss það. Opinberun Jóhannesar segir frá velmegun manna og framförum, en segir lilca frá því, hvernig Guð kollvarpar því öllu. Áform manna, mannlegar framfarir, ríki þessa heims — alt verður þetta að þoka fyrir ríki Guðs og hans smurða. Því fullkomnari, sem riki heimsins eru, þvi nreiri verður smánin og eyðingin. Takiö eftir þessu með tígulsteinana og hve vel þeim sóttist verkið. Guð bíður, þangað til vonskan hefir náð hámarkinu. Guðleysið fékk 120 ára tímabil ti! að magn- ast. Hann, hinn náðugi Guð, hefði getað eytt þeim i einum svip. En hann gefur öllum vond- um mönnum fullan frest. Þá var eigi uppi nema

x

Ljós og sannleikur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.