Ljós og sannleikur - 01.02.1920, Page 8

Ljós og sannleikur - 01.02.1920, Page 8
Ljós og sannleikur 96 Tilkynning-. Hér meö tilkynnist öllum hinum kæru lesend- um bla'Ssins, aS vegna fyrirhugaöra ferSalaga útgefanda, hættir blaSiö aS koma út um tíma. Samt er hugsanlegt, aS blaöiö geti byrjaS aftur aö koma út á þessu ári. YSar einlægur Páll Jónsson, útgefandi L. og S. móti guödómi hans, svo getur heldur enginn gert öSrum rangt til, svo aö hann styggi eigi GuS og syndgi móti honum. Honum tókst það. Drengur nokkur, sem gengiS haföi á sunnu- dagaskóla og heyrt þar sagt frá Jesú og hver sæla þaö væri aS fylgja honum, þráöi aö fá aSra til aS heyra hiS sama. Hann reyndi því í hvert sinn áSur en hann fór í skólann aö fá jafnaldra sína til aö koma meS sér. SagSi hann þeim þá, hve gott þaS væri aS heyra sagt frá Jesú, því hann elskaSi öll börn, og vildi gera þau eilíflega sæl hjá sér. Einu sinni mætti hann drenghnokka, sem gekk viö tvær hækjur og baS hann aö koma meS sér í skólann. „Æ“, svaraöi drengurinn, „en hvaS eg vildi þaö feginn, en eg get 'ekki gengiS svo langt." „Jæja, fyrst þú vilt koma mS okkur,“ sagSi þá annar drengur, „])á skal ekkert vera til fyrir- stöSu meS þaS; eg skal bera þig á bakinu.“ Upp frá því bar svo drengurinn hann alt af í skól- ann á hverjum sunnudegi; af því varö hann sjálfur svo sæll og glaöur, eins og honum hefSi veriö gefnar stórgjafir. Jesús er nógu ríkur til aS gefa öllum þeim, .sem biSja hann, svo allir geta komist til hans, ef þeir vilja. ÞaS var yndislegt trúboöa-hugarfar, sem lýsti sér hjá þessum dreng. Gætiö nú aS, börnin góS, hvort þiS hafiS sama Lugarfar. ÞaS er lunderni Krists. Mannsæíirnar. Bernskan: Hver ver þig svo, þú væna barri, aS verSir þú sem nú og beygir hné fyrir hástól GuSs í hreinum anda og trú? Æ s k a n: Eg sé, aö ofar skýjum skín hin skæra Drottins höll, já, hærra en engla höfuSból og hugsun þeirra öll. FullorSinsáriri: Er ofviörin mig hrekja og hrjá á hættum lífsins ver, eg veit þú, herra, heyrir fljótt og hjálpar veikum mér. Ellin: Af himni geislum hlýjum slær, eg huggast læt af þeim og fagrir englar fylgja mér og flytja síSast heim. (Þýtt). Vertu öruggur. Vegum GuSs ef ertu á engu skaltu kvíöa, marki næröu þínu þá, þótt þú megir bíSa. MyrkravaldiS hræSst ei hót, himnesk skín þér stjarna, GuSs í nafni gakk því mót, gefst þaS best til varna. Áfram! rnarkiS þér er sett, aldrei veill né hálfur! Sjá, þá verSur lífiS létt, léttur dauSinn sjálfur. (Þýtt). Félagsprentsmiðjan.

x

Ljós og sannleikur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.