Kári - 10.09.1918, Qupperneq 3

Kári - 10.09.1918, Qupperneq 3
KÁRI 11 jeg ura, að þetta væri í rauninni þjóðernis- einkenni okkar Islendinga. Reir, sem skera sig úr, hugsa sjálfstætt, þ. e. a. s. öðruvísi en almenningur og fara el'tir þvi, eru út- skúfaðir úr samneyti hinna svo kölluðu betri manna, þeir eru ofsóttir, einangraðir og eyðilagðir á alla lund, þangað til ekki er nema um þrent að velja fyrir þá: að ganga í sjóinn og drekkja sjer, verða aum- ingjar sjálfum sjer og öðrum til hyrði og leiðinda, eða þá að verða ófyrirleitnir, sam- viskulausir fantar. Út af ritdeilunni milli Páls og Jónasar fóru menn að rifja upp filistea-sögurnar og grafa eftir um hvað þær hefðu eiginlega verið. Og það stóð beima, þessir kaup- menn, sem frá átti að vera sagl, , höfðu flækt einfalda, saklausa sveitabændur út i ábyrgðir á skuldabrjef og víxla, l'engið þá til að »lána« nöfnin sin á þessa »pappíra« og auðvitað ekki dottið í hug að innleysa pappírana sjálfir, heldur láta sauðsvarla sveitakarlaua taka við skellinum. Svei, svei! Og með þessu höfðu þeir ekki einungis gert efnaða og sjálfstæða menn öreiga, heldur jafnv^l komið heilum sveitarfjelög- um »á hreppinn«. En það datt engum í hug, að þessir »efnuðu og sjálfstæðu« bændur ættu eða hefðu átt að íhuga hvað þeir væru beðnir um, hvað þeir skrifuðu undir og hverjar afleiðingar það gæti haft fyrir þá. Og sussu nei! Það var svo sem sjálfsagt, að þeir ættu að vera og haga sjer eins og skynlausar slcepnur, bara skrifa undir það, sem þessir filistear, þessir tjár- glæframenn, lögðu fyrir þá. Og síðan, þegar alt var komið i óeíni, og þeir, þessir efn- uðu, sjálfstæðu bændur, áttu að bjarga búum sínum og nöfnum með því að svara út nokkurum liundruðum króna, kann ske að eins nokkurum lugum króna, voru þeir ófáanlegir lil slíks, en varla fundust þeir klækir, og rneira að segja glæpir, sem bein- linis vörðuðu við hegningarlögin, sem þessir aumingjar eigi gerðu sig seka um, annað- hvort af sjálfsdáðum eða áeggjan annara, til þess að koma sjer hjá að láta af hönd- um smá upphæðir, sem enga úrslitaþýð- ingu gátu haft fyrir fjárhagslega afkomu þeirra og velliðan. Og þessi aðferð þeirra þótti almenningi, æðri sem lægri, bæði sjálfsögð og í alla staði i samræmi við vel- sæmis- og siðferðisþroska okkar íslendinga. Jafnvel dómstólarnir hafa staðfest þessa siðferðiskenningu. Og til þess að sýna með óskeikulum rökum, að þessi siðferðisskoð- un og þetta velsæmi er það, sem Islend- ingum er eiginlegt, hafa þeir fáu, sem i þessum sökum reyndust drengir með ó- veildaða skynsemi og velsæmi og fundu, að það voru þeir sjálfir, sem næstir stóðu til þess að bera afleiðingar verka sinna, verið hundsaðir og þeim legið á hálsi fyrir heimsku og ræfilshátt vegna þess að þeir höguðu sjer ekki eins og hinir. Og þeir sem haía varið tima og erfiði til þess að koma heilbrigðu skipulagi á þetta afdæma ástand, hafa beinlinis verið ofsóttir, og taldir óalandi, óferjand og óráðandi öllum bjarg- ráðum. Jeg er reiðubúinn að sanna með dómum, rjettarskjölum og eiginhandar- skjölum einstakra manna, hvenær sem vera skal, að svona er siðferðisástand hinnar fullvalda islensku þjóðar árið 1918. Það er álitið, og vissulega með íullum rjetti, að íslensk alþýða í sveitum landsins hafi verið heiðarleg og heilbrigt hugsandi alt fram að síðustu aldamótum. Og svo var það þar sem jeg þeldi til. I minu ung- dæmi þektist það ekki í mínu bj'gðarlagi að skrifleg skýrteini væru tekin fyrir því, þótt einhver lánaði öðrum muni eða pen- inga og aldrei heyrði jeg þess getið, að nokkurn tíma hefði orðið undanbrögð eða vanskil á að skila slíku aftur. Og sá, sem einhvcrju hafði lofað, efndi loforð sitt, þrátt fyrir að það hvorki var vottfast nje skrif- legt, hversu mikinn baga og óþægindi sem það bakaði honum. En nú er öldin önnur. Nú meta menn skuldbindingar, sem þeir skrifa sjálfir með eigin hendi og undirrita með ei‘ginhandarnöfnum sinum í viðurvist þar til kvaddra manna, er svo skrifa undir sem vitundarvottar, ’að engu. Og til þessa

x

Kári

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kári
https://timarit.is/publication/480

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.