Kirkjublað - 15.01.1934, Síða 4

Kirkjublað - 15.01.1934, Síða 4
16 KIRKJUBLAÐ heima fyrir og í þeim löndum, sem vér höfum haft skifti við, þar sem vér höfum drukkið hana inn með móður- mjólkinni, þar sem vér höfum vaxið upp í jarðvegi hennar og hverja stund andað að oss í andrúmslofti hennar, þá er það auðsætt, að vér getum aldrei borið um það til fulln- ustu, hvaða áhrif kristnin hefir haft á oss, og hvernig kom- ið væri málum þjóðfélagsins, ef kirkjunnar hefði ekki not- ið við. í þessi ár, í allar þessar aldir hefir kirkjan haft gertæk áhrif á einstaklinginn og þjóðlífið á öllum sviðum lífsins, á samvizkuna og siðavitið, á tilfinningarnar og viljalífið, á framkomu einstaklinganna innbyrðis, á löggjöf og heil- brigðismál, á heimspeki og listir, á vísindi og iðnað og svo framvegis ekki eingöngu af því, að prestarnir eða aðr- ir forráðamenn kirkjunnar hafi á einhvern hátt látið þessi mál til sín taka á stólnum og’’stéttunum. Auðvitað hafa þeir gert það. En áhrifin eru ekki öll þaðan. Með óteljandi háttum hefir kenning Krists alltaf verið að gagnsýra hug- arfar manna, eins og súrdeigið, sem látið er i mæli mjöls. Á ég að grípa tvö, þrjú dæmi af handahófi af öllu því, sem kemur fram í hugann til sönnunar því, hver áhrif kenn- ing Krists hefir haft á hugarfar vestrænna þjóða.? Hvaða sjúkrahús eða fátækrahjálp var til í heiminum á undan kirkjunni? Og svo er eins og sumir þykist vera að finna þetta upp núna. Og þeir tala á þá lund, að kirkjan hafi allra sízt nokkurntíma léð Iið slíkum málum. Eða hvar kemur það fyrst upp að afnema þrælasölu eða takmarka og jafnvei banna vinnu barna í verksmiðjum? Ég ætla að það verði erfitt að afsanna, að þetta eru beinir ávextir anda Krists. Eða á ég að nefna það, sem öld vor er allra hreykn- ust af: raunvísindin, hina geysilegu aukning efnislegrar þekkingar, sem að mörgu leyti hefir orðið undirstaða ótrú- legra framfara, en einnig til geysilegrar spillingar, því allt má misnota? Framgangur raunvísindanna byggist að öðrum þræði

x

Kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.