Kirkjublað - 15.01.1934, Side 5

Kirkjublað - 15.01.1934, Side 5
KIRKJUBLAÐ 17 á óslökkvandi þekkingarþorstá, en að hinum á takmarka- lausri trú á hæfileikum mannsins og ósigrandi sannleiksást. Halda menn svo, að það sé skemmtileg tilviljun að þessi vísindi verða til á meðal kristinna manna, eða að minnsta kosti ná hjá þeim slikum framgangi og raun ber vitni ? Það gerist ekkert af tilviljun, og þetta ekki frekar en annað. Þetta á höfuðrót til þess að rekja, að engin trúar- brögð leggja slíka áherzlu á gildi mannsins sem kristin- dómurinn, né halda því fram, að hann eigi að sækja á slíkan þekkingarbratta. Og engin önnur trúarbrögð kenna jafnt um verðleika sannleikans. í þessu sambandi get ég ekki annað en brosað að því, þegar menn eru að miklast af menning vorri í sam- bandi við menning t. d. austrænna kynflokka, og telja sjálfsagt af þeim að læra af oss. En sömu menn mega ekki heyra nefnt, að þeim sé boðuð trú vor. Það er eins og þeir ætluðu að útbreiða tréð með því að stinga niður trjákrónunni í stað þess að sá til þess fræinu. En svo ég snúi mér aftur að meginmálinu. Þeir, sem ætla að »slá sér upp« á því að fara lítilsvirðingarorðum um áhrif kirkjunnar, verða meðal annars að gera það sem nú skal greina: Þeir verða að geta lifað upp það ástand, sem var í heiminum, þegar Kristur kom fram, svo þeir fái borið það hlutlapst saman við það ástand, sem nú ríkir í hinum kristnu löndum. Þetta er að mörgu leyti nálega óframkvæmanlegt. Oss gengur furðanlega erfitt að setja oss í spor samtíma- manna og enn verr í spor einstakra manna á umliðnum öldum. Og þó verst að lifa upp, ef svo mætti að orði kveða, æfa- fornt þjóðfélagsástand. En það er alveg áreiðanlegur hlut- ur, að svo miklu leyti sem þessi samanburður er mögu- legur, þá verður hann ekki til vansæmdar kristninni. Víst er nú engin þjóð til undir sólunni, sem kristin- dómurinn hefir ekki haft einhver áhrif á. En þeir sem vilja leita sannleikans um áhrif og ávexti kristninnar, geta reynt

x

Kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.