Ljósvakinn - 01.01.1923, Page 3

Ljósvakinn - 01.01.1923, Page 3
' Ljósvaiíinn 27 fyrir sorgum, bíðum vér tjón, séum vér einmana, þá eigum vér vin, sem sýnir oss samúð og lítur með réttsýni á kjör vor. Þótt oss í fávisku vorri verði margt á, yfirgefur frelsarinn oss þó ekki. Vér þurfum aldrei að finna til einstæðings- skapar. Englarnir eru leiðtogar vorir. Talsmaðurinn, sem Kristur lofaði að senda f sínu nafni er hjá oss. Á þeim vegi, sem liggur til lífsins, eru engar torfærur, sem sá, er felur Drottni vegu sína ekki getur komist yfir; engin hælta^ sem hann ekki megnar að umflýja, engin sorg, er hann ekki er fær um að bera; engin mannlegur vanmáttur, sem Drottinn ekki hefir séð honum fyrir hjálp og styrk f. Enginn þarf að láta bugast af ör- væntingu. Óvinurinn getur komið til þín og hvislað að þér: »það er engin von með þig, þú getur ekki frelsast«. En það er von fyrir þig i Kristi. Guð ætlast ekki til, að vér sigrum í eigin krafti; hann býður oss að koma til sín. Hvað helzt sem þjáir oss andlega eða líkamlega, svo er hann fús að bæta úr því. Hann, sem tók á sig mannlegt eðli, skilur svo vel, og hefir svo rfka samúð með manninum í hinum margvíslegu þjáningum hans. Kristur þekkir ekki einungis sérhverja sál, hið persónulega eðli vort, þarfir vorar, sorgir vorar og þrautir, heldur einnig allar beinar og óbeinar orsakir þess, að vér erum svo eða svo. Armleggur hans er útréttur og hjarta hans opið fyrir hverri aðþrengdri sálu. Þeim, er þjást mest, sýnir hann Dákvæmasta umhyggju, mesta með- aumkun og hluttekningu. Hann býður °ss, að varpa allri vorri áhyggju, ótta, sorgum og þrautum á hann. Það er ekki hyggilegt að hugsa stöð- ugt um sjálfan sig eða fara eftir sínum eigin tilfinningum. Ef vér gerum það, á óvinurinn svo hægt með að freista vor og innprenta hjá oss ýmislegt, sem veik- ir trú vora og gerir oss kjarklausa. Vér megum ekki láta um of stjórnast af til- finningum vorum, það orsakar efagirni og óróleika. Vér verðum aö lyfta aug- um vorum til Jesú, en ekki stara á sjálfa oss. Pegar freistingar ætla að yfirbuga þig, þegar harmur og raunir þjaka sálu þina og þér finst, að fokið sé i öll skjól, þá littu þangað sem síðasti gleðigeisli þinn var. Hvíl undir verndarvæng Krists, í kærleika hans. Þegar syndin berst um yfirráðin í hjarta þínu, þegar samvisk- an ásakar þig, þegar vantrúin glepur þér sýn, þá mundu, að náð Krists nægir þér, hann megnar að sigra syndina og reka sorgamyrkur sálar þinnar á flótta. þegar vér komumst i samtélag við frels- arann, þá höfum vér lent í öruggri frið- arhöfn. Ellen G. White Y ísindin ófullnægjandi. Pað er óneitanlegt að stjörnufræðin getur leitt i ljós nokkuð af mikilleik sköpunarverks Guðs, en hún fræðir oss ekkert um kærleika hans og meðaumk- un með syndurum. Hún getur fundið gang vetrarbrautarinnar; en hún getur ekki leitt deyjandi sálir á veg lífsins. Hún getur sagt þér hve langt jörðin er frá sólinni; en hún getur ekki frætt þig um það, hversu langt Guð vill koma syndum vorum burt frá oss. Hún getur útreiknað gang halastjarnanna, en hún

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.