Ljósvakinn - 01.01.1923, Síða 6

Ljósvakinn - 01.01.1923, Síða 6
30 LJÓSVAKINN með óseðjandi og harðúðugri eftirsókn eftir jarðnesku valdi og dýrð? Hvernig fór fyrir þeim sem gátu veitt sér alt, sem holdið og augað girntist. Hvað varð um allan þann munað og skraut, sem þeir hlóðu utan á sig og kringum sig? Sannlega er það satt, að heimurinn fyrirferst og fýsn hans«. Þess vegna er sá hygginn, sem fylgir áminningu post- ulans að elska eigi heiminn, né þá hluti, sem í honum eru. Svo lengi sem heimurinn er í hjarta voru, þá heyrum vér honum til. Ef vér viljum eignast eilift líf, þá verðum vér að losa oss í tima út úr heiminum, segja skilið við hann. bÞví alt hold er sem gras og öll veg- semd þess sem blóm á grasi; grasið skrælnaði og blómið féll af, en orð Drottins varir að eilífu«. 1. Pét. 1, 24, sbr. sálm 102, 12; Jes. 40, 6—8; Jak. 1, 10, 11. Stöðugleiki. »En er sól kom upp, skrælnaði það, og sökum þess að það hafði engar ræt- ur visnaði það, (Malt. 13, 6). Hér er átt við sálir sem að vissu leyti eru vakn- aðar til umhugsunar um andleg efni, sem um langt skeið vaka aðra stundina en sofa hina, sem í ótta og angist með augun að hálfu leyti opin og að hálfu leyti aftur, líta upp og kringum sig, mörgum sinnum á syndabeð sínum, en falla bráðlega aftur í synd og andvara- leysi, og við hverja þessa vakningu end- urtaka þannig óstöðuglyndi sitt. Ó, hversu nauðsynlegt það er fyrir slíkar sálir að velja ákveðið og velja hið góða. Linderot. Trúr í litlu. Það er til frásögn um barn eitt, sem kom auga á gat á garði þeim, er varn- ar hafinu að flæða inn yfir Holland, og með þvi að stinga hendi sinni í gatið og standa þar alla nóttina, þangað til hjálp kom, gat komið i veg fyrir með sinni litlu, hvitu hendi, að vatnsmagnið streymdi þar inn. Það var að vísu ekki nema örlítið rensli, sem barnið þurfti að stöðva, en bunan mundi brátt hafa stækkað, ef barnið hefði ekki gripið þetta ráð, og um morguninn mundi straumurinn hafa verið farinn að flóa inn yfir landið og leggja undir sig akra, hús og þorp. Milli hafsins og allrar þessarar eyðileggingar, var að eins ein barnshönd. Hefði barnið gefist upp, þá hefði hafið flætt inn með miskunnar- lausu ráni. Vér getum skilið hversu á- ríðandi það var að drengurinn gætti sín, þar sem hann var sá eini, sem Guð hafði til að vernda Holland þessa nótt. En veitst þú að ef til vill er einnig þitt líf einhvern daginn það eina sem varn- ar einhverri hræðilegri flóðbylgju sið- ferðilegs ráns, að flæða inn yfir stóra blómlega akra? Veitst þú, að hirðuleysi þitt um hin minstu skylduverk í þinni einföldu stöðu, getur ef til vill hleypt inn þeim óhamingjusjó, sem skolar burt von margra manna og gleöi, og sálum manna. Hinn lítilfjörlegasti af oss má ekki bregðast skyldu sinni. Pvi að vort eina líf er það alls eina, sem Guð hefir til að nota á þeim stað þar sem vér stöndum í það og það sinnið.

x

Ljósvakinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.