Ljósvakinn - 01.01.1923, Side 10

Ljósvakinn - 01.01.1923, Side 10
34 LJÓSVAKINN Eina hjálpræðið. Innan takmarka trúarbragðanna er tæplega nokkurt atriði, er ætti skilið jafnmikla athugun og þetta: »Af hverj- um er hjálpar að vænta«. Pétur post- uli gefur oss nákvæmar skýringar á þessu í Postulas. 4, 10, 12«. Og ekki er hjálpræðið í neinum öðrum, því að eigi er heldur annað nafn undir himn- inum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða. Maðurinn var skapaður með hreinu og göfugu hugarfari, því hann var skap- aður í Guðs mynd. Spekingurinn Saló- mon segir: »Sjá, þelta eitt hef eg fund- ið, að Guð hefir skapað manninn bein- an«. Prd. 7, 29. Hjarta mannsins var hreint og hei- lagt, hann lifði i nánu samfélagi við Guð. En við syndafallið varð maðurinn þræll hins illa, og siðan hefir guðs- mynd mannsins farið síhnignandi: Hjarta mannsins er orðið spilt og hann getur ekki af eigin mætti gert það, sem gott er. Páll segir i Róm. 7, 14: »En eg er holdlegur, Seldur undir syndina, því að hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans lif og friður«. »En þeir sem eru holdsins menn, geta ekki þókn- ast Guði«. Róm. 8, 6, 8. Ymsir menn spyrja: »Hversvegna ekki?« í Róm 7, 18, 19 er svar við þvi. Páll fann, að hjarta hans vantaði hið góða, því þráði hann það, en hann fann, að af eigin mætti gat hann ekki aflagt hið illa. Þess vegna hrópaði hann: »Eg aumur maðurl Hver mun frelsa mig frá þess- um dauðans líkama?« Róm. 7, 24. Þetta er angistaróp, sem brýst frain af vörum margra þjáðra sálna, það hefir verið svo, og mun verða um heim all- an. Öllum gefst sama svarið«. Sjá, guðs- lambið, er ber syndir heimsins«. Jóh. 1, 29. Engin mannleg viska eða lærdómur, enginn mannlegur vilji eða viðleitni get- ur gert oss auðið að skilja eða kent oss að meta; réttlæti og kærleika Guðs. Ritn- ingin sýnir oss mörg dæmi þess, en hér verða að eins nefnd örfá, »En ísrael, sem sóttist eftir lögmáli, er veitt gæti réttlæti, náði ekki slíku lögmáli«. Róm. 9, 31. Sá, sem leitast við að réttlætast af því einu aö halda Guðs boð, vinnur fyrir gíg. Hvað segir Páll um fræöimennina? »Því að þar eð heimurinn með speki sinni þekti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að gera hólpna með heimsku predikunarinnar þá, er trúa«. 1. Kor. 1, 21. Korintumenn þektu ekki Guð í speki hans. Ennfremur höfum vér samskonar dæmi frá Efesus, þar sem postulinn starfaði lengi og predik- aði orð lífsins. (Ef. 4, 17, 18). Því að þeir voru blindaðir í hugsun sinni og fjarlagir lífi Guðs þrátt fyrir speki sína. Hvað finnum vér í Aþenu? Menn þektu ekki hið eina hjálpræði, hina einu frelsis og lífsvon. Salómon hefir sagt oss ástæðurnar fyrir því að þeir þektu ekki Guð. Hann segir: »Maður- inn leitar margra bragða«. Er ekki hið sama tilfellið á vorum tímum? Fyr á tímum sátu vísindin í öndvegi við alla æðri skóla, hið sama er nú — og afleiðingin einnig sú sama. Salómon hvetur oss til að kaupa visku. »Kaup þú sannleika og sel hann ekki, visku og hyggindi«. Orðskv. 23, 13. Á vorum tímum skín ljós sannleikans á leiðir mannanna, en margt af þeim, er sér það ganga ekki á vegu ljóssins, en fara 1 þess stað krókaleiðir óvinarins

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.