Ljósvakinn - 01.01.1923, Page 12

Ljósvakinn - 01.01.1923, Page 12
3(5 LJÓSVAKINN töku frelsinu í Kristi, hafa snúið frá syndum sínum, trúa á Jesúm Krist og og framganga í hlýðni við hans boð. Slíkir menn eru vissulega útvaldir. Guð hefir heitið þeim eilifu lífi og hann mun varðveita þá frá afvegaleiðslum Satans, því að þeir trúa orði hans og hlýða því. En allir aðrir munu lenda i snörum Satans. Með alls konar vélum ranglœlisins Páll lýsir þessu á líkan hátt. þar sem hann segir að koma Iírists verði »fyrir tilverknað Satans, með alls konar krafli og táknum og undrum lýginnar og með alls konar vélum ranglætisins fyrir þá, sem glalast, af því að þeir veittu ekki viðtöku kærleikanum til sannleíkans«, að þeir mættu verða hólpnir«, (2. Pess. 2, 9—12). Allir sem glatast, munu glatast af því að þeir veittu ekki viðtöku kærleikan- um til sannleikans«. Þeir kjósa fremur að fylgja sínum eigin lystisemdum en sannleika Guðs. Guð gefur öllum frjáls- ræði til að velja. Sjálfir getum vér valið. Og þegar Satan starfar »með alls kon- ar krafti og táknum og undrum lýginn- ar« þá standast einungis þeir, sem hafa algerlega snúið sér til Guðs. Pessi orð sýna, að það eru erfiðir dagar sem vér nálgumst. Höfnun Ijóssins. Ritningin segir að alvarlegur viðvör- unarboðskapur skuli boðast fyrir heim- inum rétt áður en Kristur komi. (Op. 14, 6—14.). Allur þorri manna mun hafna ljósinu. En með því hafa þeir skipað sér þar, sein Satan á hægt með að afvegaleiða þá með táknum sinum og undrum, á sama hátt og Gyðingarnir leiddust afvega, er þeir krossfestu frels- arann. Hið sérstaka tákn, sem mun afvega- leiða mennina, er þetta: »Og það gerir tákn mikil, svo að það lætur jafnvel eld falla af himni ofan á jörðina í aug- sýn mannanna«. (Op. 13, 13.). Regnslan á Karmel. Petta mikla kraftaverk, að »1 áta eld falla af himni ofan á jörðina«, er sama kraftaverkið, sem Drottinn gerði fyrir augum ísraels á dögum Elía. Prestar Baals höfðu árangurslaust hrópað á guði sína að biðja þá um að senda eld af himni til að eyða fórninni. En Drottinn gerði einmitt þetta krafta- verk sjálfur. (Sjá 1, kon. 18, 17.—40.). Á þeim tímum gátu þjónar Satans ekki gert þetta kraftaverk. En Biblian skýrir oss frá, að þeir muni geta það á hinum síðuslu dögum. Og hvilik áhrif mun ekki slíkt kraftaverk hafa á alla þá sem hafa hafnað sannleikanum. Peir munu verða algerlega blektir af Satan. Ritningin kennir að Satan muni koma frain sem »Ijóssins engill«. Og auðvilað mun hann afvegaleiða fjöldann. En Guðs útvöldu munu þekkja blekking- arnar. Frh. Hún gerði það sem hún gat. Einu sinni kom kona nokkur lil prestsins Cambell Morgan og spurði hann, hvernig hún gæti tekið þátt í starfinu fyrir Guðs ríki. Hann svaraði henni: »Eruð þér reiðubúin að gefa meist- aranum brauðin fimm og fiskana tvo?«

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.