Ljósvakinn - 01.01.1923, Blaðsíða 13

Ljósvakinn - 01.01.1923, Blaðsíða 13
LJÓSVAKINN »Eg hefi ekkert að gefa honum«, var svarið, »Getið þér sungið«, spurði presturinn. »Já, það get eg, eg hefi líka einu sinni sungið á kvöldskemtun«. »Viljið þér gefa Frelsaranum söng- rödd yðar — segjum í næstu viku, til dæmis ?« Hún svaraði játandi. Næsta sunnudag á eftir bað hann hana að syngja á samkomu einni. Eftir samkomuna kom maður nokkur til Campbell Morgan og leitaði ráða hans í sáluhjálparmáli sínu. Hann sagði að það hefði verið söngur hinnar ungu stúlku, sem hefði hrært við hjarta sínu. Þessi maður var í mörg ár samfleytt einn af hinum duglegustu starfsmÖDn- um fyrir Guðs ríki. Hvernig atvikaðist það? Stúlkan gaf Meistaranum það sem hún átti, og í hans hendi varð það til blessunar. Pað er erlitl: að biðja afsökunar, að byrja aftur, að játa yfirsjón, að vera óeigingjarn, að horfa þegjandi á háðbros, að vera nærgætinn, ' að þola mótlæti, að reyna aftur og aftur, að læra af glappaskoli, að fyrirgefa og gleyma, að hugsa fyrst og breyta svo, að brjóta gamlan óvana, að sýna þá réttu sparsemi, að þola verðskuldaða aðfinslu, að yfirbuga nöldursamt skaplyndi, að halda virðingu í hárri stöðu, að finna og fara eftir hinni gullvægu 37 reglu: »Alt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera«. En það borgar sig ávalt. Sjálfsuppeldi Englendingur nokkur segir, að heslu læknar heimsins séu, holl fæða, ró og gott skaplyndi. Milli sálarinnar eða andans, og líkamans er svo náið sam- band, að heilbrigði líkamans hefir stór- koslleg áhrif á sálarlífið. Það er afar þýðingarmikið fyrir hugsana og tilfinn- ingalíf vort, að halda líkamanum vel hreinum og skifta nógu oft um klæðn- að, að æfa vöðva vora, að anda að sér hreinu lofli, eta og drekka í hófi o. s. frv. Það, sem vér etum og drekk- um, hefir annað hvort góð eða ill á- hrif, ekki einungis á líkamann, Jieldur lika á skaplyndið. Ef þér líður eins vel, eða belur, þeg- ar þú stendur upp frá borðum eins og þegar þú settist niður, þá sýnir það að þú hefir etið nóg, en ekki meira. Pað er ágætt ráð, að hugfesta sér þessar reglur. Et ekki einungis til að eta. Hafðu það altaí í huga við borðið, að mál- tíðin hefir ætlunarverk, nefnilega að veita likama þinum krafta og viðhald. Hugsaðu um það starf, sem þú átt að leysa af hendi að máltíðinni lokinni, um, að skapið þarf að vera gott, liugs- unin skýr og taugarnar þolnar. Þegar þú starfar með heila eða vöðv- um, eyðir þú heila eða vöðvakraftin- um. Fæðan á að bæta upp þessa krafta. Pað er fæðan, sem gerir þér mögulegt

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.