Ljósvakinn - 01.01.1923, Blaðsíða 14

Ljósvakinn - 01.01.1923, Blaðsíða 14
38 LJÓSVAKINN að taka til starfa á ný, hvoit heldur er með sál eða líkama, Etir þú yfir þig, munt þú í staöinn fyrir stælta vöðva og skýran heila finna, að þú ert lalur og þunglamalegur, daufur og sljór. Maður nokkur sagði, að enginn hest- ur gæti lifað lengur en eina viku með öðru eins ofáti og ætti sér stað meðal mannanna. Þegar hófsemi í fæðunni er svo áríðandi fyrir dýrin, hvað mundi þá fyrir mennina! Það er að verða mönnum æ ljósara og ljósara, hversu andlegur og líkamlegur þróttur, heil- brigði og hamingja er komin undir því, hvað og hve mikið vér etum. Það er því skynsamlegt fyrir oss, að byrja sjálfsuppeldi vort með því, að temja matarlystina, og þetta verður auðveld- ast með því að hafa hugfast, að ætlun- arverk fæðunnar er, að veita oss fjör, þroska og þrautseigju í baráttu lífsins. Látum oss eta til að lifa; og ef oss er umhugað unr vellíðan vora og þá köll- un er vér eigum að rækja, þá ætti ekki að vera of mikið á oss lagt, þótt vér neituðum oss um eitt eður annað af þeim krásum, sem vér vitum með vissu að skaða heílsu vora; það mundi jafn- vel ekki geta talist mikið óhyggilegra en að láta ofan í sig eitur. Aö mörgum dögum liðnum. (Framh.) Undir nafninu: »Minnisverð nöfn«, ritar hann á þessa leið: »Dimmi dagurinn 19. maí 1780 er svo nefndur af því, að myrkur var mikið þann dag, sem tók yfir alt »Nýja England«. Myrkvunin hófst um kl. 10 f. m. og varaði alt til miðnælur, en var eigi allstaðar jafn dimmur eða jafn langvinnur. Hina sönnu orsök til þessa myrkva veit enginn«. »Þér heyrið, að liann segir, að enginn hafi vitað orsakir þessa fyrirbrigðis nátt- úrunnar. Sumir vilja láta það hafa ver- ið sólmyrkva, en það er ekki satt. Eg hefi hér fyrir mér orð um það. Dr. Sa- muel Sfearns segir í árbók sinni 1780: Tunglið var 150 stig frá sólu allan þann dag«. »En hefirðu nokkrar sagnir af því, hvað í raun og veru gerðist á þessum degi?« spurði frú Lawrence. »Já, eg hefi nokkrar sagnir, sem þér munuð hafa forvitni á að heyra. Frélta- ritari blaðanna í Boston, Gazette og Country Journal (29. maí 1780) skýrði frá athugunum nokkurra mentamanna í húsi prestsins Cutler og sagði. »Um kl. 11 var myrkrið orðið svo, að við veittum því athygli og fórum að alliuga það. Og kl. IU/2 var orðið svo dimt, að sjóngóðir menn gátu ekki les- ið stórt prentletur í herbergi, þar sem þrír gluggar voru og 24 rúður í hverj- um glugga, er allir vissu til suðurs og suðausturs. Um kl. 12 varpaði skugga af kerti svo skýrum á vegg andspænis, þó að allir gluggarnir væru opnir, að skýrari hefði hann ekki orðið á nóttu, og var tekin mynd af því. KI. 1 hvarf síðasta dagsglæta, sem varað hafði á austurloftinu til þessa, dimman varð meiri en hún liafði verið nokkrum tíma áður. Vér borðuðum miðdegisverð um kl. 2 fyrir opnum gluggum og tveimur kertum logandi á borðinu. Þegar myrkrið var sem mest, settust suinir alifuglar á stangir sfnar. Hanar svöruðu hver öðrum galandi eins og um miðja nótt væri. Náttfuglar skríktu alveg eins og um hánótt. Frosk-

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.