Ljósvakinn - 01.01.1924, Side 1

Ljósvakinn - 01.01.1924, Side 1
Reykjavík, janúar 1924. 1. tbl. Yon hoimsins. Frá mannlegu sjónarmiði séð, er út- litið í heiminum nú sem stendur, alt annað en glæsilegt, en frá sjónarmiði Heilagrar ritningar er núverandi ástand tákn þess, að bjartari og betri tími sé fyrir höndum. Guð hefir ekki yfirgefið þessa jörðu; hönd hans stjórnar enn þá rikjum mannanna. Mitt í allri hinni mannlegu ringulreið, leiðir hann til lykta sitt guðdómlega áform. Maðurinn í skammsýni sinni reynir að gera sitt besta, og á hinum ýmsu sviðum lífsins reyna góðir menn og konur að stöðva þann vonskunnar straum, sem æðir ógnandi yfir heiminn; og þeir vinna lika mikið gott og lofsvert með tilraun- um sínum, En jatnvel það bezta og ítrasta sem mennirnir geta gert, mun samt ekki megna að afstýra hinni hræðilegu hættu. Tilraunir þeirra geta að eins hjálpað í svipinn, ef þær ann- ars koma að nokkru verulegu gagni. Það er einungis til ein von fyrir heim- inn í dag, og hún er sú, að friðarhöfð- inginn komi bráðlega aftur. Fúsundir manna spyrja hvað fram- tíðin muni bera í skauti sínu. Mun ástandið í hinum komandi heimi verða betra? Höfundur einn kemst þannig að orði í tímaritinu »Cosmopolitan Maga- zinecc »Sé til betri heimur en þessi þá þrá- um vér að fá fullvissu um það, og það sem fyrst. Vér erum eins og farþegar á stóru skipi, sem hefir orðið fyrir skoti og er að sökkva undan fótum vorum. Margt af því, sem vér reiddum oss á, reynist nú svikult. Slíkt á sér stað á öllum sviöum. Áður gátu þeir sem ekki undu hag sínum í Ameríku tekið sig upp og farið til Evrópu og þeir sem ekki voru ánægðir í Evrópu gátu farið til Ameríku, En nú er allstaðar órói og angist. Menn leita að traustum grund- velli en finna hann ekki; miljónir manna

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.