Ljósvakinn - 01.01.1924, Blaðsíða 8

Ljósvakinn - 01.01.1924, Blaðsíða 8
8 LJÓSVAKINN meiri í Yokohama en í Tokio. í síöarnefndri borg sýna skýrslur lögreglunnar, að 316,000 hús hafa algerlega eyöilagst og 1,357,700 manns oröiö heimilislausir. 1 Yokohama standa aftur á móti aö eins 2 hús og þau eru brunnin að innan, — svona var eyöi- leggingin alger. Hingað til hafa verið brend í Tokio 85,000 lík, en það er fjöldi eftir enn- þá í rústunum. Sumir staðir, þar sem hið heimilisleusa fólk leitaði sér hælis hafa orð- ið sannkallaðar gildrur, t. d. má benda á hernaðarstöðina í Tokio, þar sem 35,000 manns er höfðu flúið þangað I jarðskjálft- anum, brunnu inni. Pað er ekki eins auð- velt að skrifa greinilega lýsingu af þessum hræðilegu viðburðum eins og hugsa sér þá. Frá Yokohama eru engar nánari fregnir komnar um mannhrunið. Prjár baðstöðvar við ströndina, þar sem margt manna var saman komið skoluðust burtu með ógur- legri flóðöldu, og hurfu með öllu. Hatnar- bryggjurnar eru sokknar og jarðgöng og brýr hafa fallið saman. Pað er næstum óvinnandi verk fyrir yfirvöldin að bæta úr vandræðum allra þeirra sem orðið hafa heimilislausir og vanta daglegt viðurværi. Gjafir berast að vísu að frá öllum löndum og hjálpar það ástandinu mikið. Fyrstverð- ur að hjálpa þeim sem líða nauð, áður en farið er að gera nokkuð til að bæta úr tjóni á húsum eða öðrum efnislegum eign- um. — I sambandi við þetta gæti verið rétt að athuga hvað einn amerízkur rithöfundur hefir bent á: að á hinum síðustu árum (eða síðan 1914) hafi geysað hið stórfeldasta stríð sem heimurinn þekkir til, hin mesta drep- sótt sem átt hefir sér stað (spanska pestin) hin mesta hungursneyð sem nokkru sinni hefir borið að höndum (í Rússlandi og víð- ar) og nú síðast hinn mesti jarðskjálfti sem sögur fara af. Petta eru tákn tímanna, er koma heim við spádóma Biblíunnar um þær hörmungar sem boða endirinn og um að »menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heims- bygðina.« Tíminn, sem vér lifum á er vitj- unartími; mættum vér læra að þekkja hann og búa oss undir það sem í vændum er, endurkomu frelsarans, samkvæmt orðum spádómanna. _________________ Sól og tungl mun sortna hljóta, sérhver blikna stjarna skær, öldur hafs í æði þjóta, angist ríkja fjær og nær, alls kyns neyð og eymdir rísa; enginn þeirri býsn kann lýsa. Svo fer dagur dóms í hönd, dynur skelflng yfir lönd. Lítið upp, sem lútið niður, litið upp er slíkt að ber; skelfi neyð þá engin yður, yðar lausn því nálæg er. Horfið upp frá höfum nauða, horfið upp frá gröfum dauöa, horfið upp frá harmi’ og sorg, horfið upp í lifsins borg. LJÓSVAKINN færir hinum mörgu kaupendum sinum, kærar þakkir fyrir skilvísa greiðslu á blað- gjaldinu siðastliðið ár, og óskar að njóta sömu velvildar þeirra á þessu nýbyrjaða ári. Blaðið vill og þakka fyrir kærkomin og vingjarnleg bréf frá ýmsum af kaupend- um sínum, og gleðst blaðið yfir því, að heyra að það hefir verið kærkominn gestur á heimili lesenda sinna, og getað fært þeim hjálp og uppörfua í baráttu lífsins. Petta er það sem blaöið vill og mun leggja alt kapp á framvegis. Pað er þess innilegasta ósk að geta kastað Ijósgeislum út í hið andlega myrkur, sem nú er i heiminum og hjálpað mönnum til að festa sjónar á sólu réttlæt- isins, Jesú Kristi. — Að svo mæltu óskar blaöiö öllum lesendur sínum góðs og far- sæls nýárs og þakkar þeim fyrir hið liðna ár. L JÓS VAKINN, málgagn S. D. Aðventisla, kemur út einu sinni í mánuði. — Kostar kr. 2,75 árgangurinn. — Gjalddagi 15. jan. og fyrirfram. — Útg.: Trúboðsstarf S. D. Aðventista. — Ritstjóri: O. J. Olsen. Sími 899. Pósth. 262. — Afgreiðslum.: J. G. Jónsson, Ingólfsstr. 21 B. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.