Ljósvakinn - 01.03.1924, Qupperneq 1
„Kom þú og sjá‘\
(Niðurl.).
Og ef vér aðeins viljum koma og sjá,
þá munum vér líka skilja, að það er
af kærleika til vor, að Guð býður oss
að gera þetta og bannar oss að gera
hitt; hann veit að þetta er oss fyrir
bestu, bæði tímanlega og andlega. »Æ,
að þú vildir gefa gaum að boðorðum
tninum, þá mundi heill þín verða sem
fljót og réttlæti þitt sem bylgjur sjávar-
ins«. Es. 48, 18. Þannig segir Drottinn
við oss.
Ef vér hættum að láta oss nægja það,
sem þessi eða hinn kann að segja oss,
hættum að láta oss nægja mannasetn-
ingar og mannaboðorö, en í þess stað
komum sjálfir og sjáum; ef vér eins og
María, veljum »góða hlutskiftið«, og
setjumst við fætur frelsarans, þá inun
hann Ijúka upp augum vorum fyrir þvi
rélta og ranga, fyrir þvi heilaga og van-
heilaga, þá mun hann kenna oss hið
eina eftir annað og leiða oss eins og
lítil börn fet fyrir fet, veginn sem ligg-
ur heim til hans.
Ef vér lærum að hafa umgengni vora
á himnum, ef vér höfum skygnst inn í
hið heilaga og óforgengilega, þá mun
oss ekki framar langa eftir glaumi heims-
ins og fánýtum skemtunum, því vér
vitum, að »heimurinn fyrirferst og fýsn-
ir hans«.
Ef vér, eins og Páll postuli kemst að
orði, erum »orðnir samþegnar hinna
heilögu og heimamenn Guðs«, og lífið
í Guði vor persónulega eign, þá mun-
um vér aldrei framar þurfa að spyrja
hvorl slikt líf sé dauft og gleðisnautt.
Ef vér höfum lært að fela Drottni allar
vorar óskir og vonir, öll vor áform og
fyrirtæki, þá munum vér sjá, að hann
»bænheyrir oss á hagkvæmri tíð, og
hjálpar oss á hjálpræðis degi«.
Pá munum vér sjá, að hann, sem
hefir á hendi stjórn alheimsins, hefir þó
tima til að skifta sér af högum ein-