Ljósvakinn - 01.03.1924, Qupperneq 2

Ljósvakinn - 01.03.1924, Qupperneq 2
18 Ljósvakinn staklingsins, tíma til að taka fram fyrir hendur vorar, þegar vér ætlum að gera eitt eður annað, sem yrði oss til ógæfu, tima til að bíða eftir betrun vorri, með- an nokkur von er með oss, því hann vill að allir verði hólpnir og komist til þekkíngar á sannleikanum. Það er gott og gagnlegt, það er skemti- legt og uppörfandi, að minsta kosti fyr- ir hvern sannkristinn mann, að heyra aðra lýsa reynslu sinni í trúarefnum, heyra aðra tala um gæsku Guðs við sig, heyra þá tala um gleðina í Guði, o. s. frv. — en hvað er það móti því að hafa sjálfur reynt — að hafa sjálfur komið og séð — að hafa sjálfur smakk- að, hvað Guð er góður, fengið fyrir- gefningu hans, notið fræðslu hans, um- hyggju og kærleika, já, hlotið eilífðar- vonina við tilkomu hans. þegar vér höf- um náð því, þá er það, að vér höfum öðlast þann frið, þann fögnuð, sem enginn mun geta frá oss tekið, en þá er það líka, að kærleikur Krists knýr oss, svo vér hljótum að segja við meðbræður vora eins og Filipus sagði við Natanael: »Kom þú og sjá!« E. G. Mánaðartími skoðaður í ljósi spádómanna. »Og á jörðinni mun verða angist meðal þjóðanna í ráðaleysi við dunur hafs og brimgný ; og menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbygðinao. Lúk. 21, 25-26. »Flakandi i sárum, hrakin og hrjáð af ógurlegustu eríiðleikum, reynir Ev- rópa í örvæntingu sinni að öðlast aftur friðinn og bjarga menningu sinni«. Hin fyrri þessara tilvitnana er tekin úr ræðu er frelsarinn hélt yfir læri- sveinum sínum árið 31 eftir Kr. Hin siðari er meðal þeirra óteljandi blaða- greina, er ljóslega vitna um, angist og ráðaleysi meðal þjóðanna. Jörðin er orðin sjónarsvið hræðilegra atburða, stórslysa á sjó og landi. Mennirnir horfa orðlausir á eyðileggingu, dauða, vaxandi giæpi, grimdarverk og illa hegðun manna á meðal. Vísindamenn erfiða nótt og dag; með öllum sínum líkams og sál- arkröftum vinna þeir að þvi að finna upp og endurbæta hræðilegar morðvél- ar meðan aðrir standa hjá og horfa á »í angist og ráðaleysk yfir því, er ske mun á þeim degi, er farið verður að nota þær. Á öllum sviðum sér hinn trúaði les- ari uppfyllingu hinna margvislegu spá- dóma ritningarinnar, er segja fyrir á- sland hinna siðustu daga jarðarinnar. Hér fer á eftir listi yfir slys á að eins tveim sviðum. Og tökum eftir, þetta hefir ekki skeð með árs, mánaðar eða viku millibili. Petta eru daglegar fregn- ir blaðanna um slys á tveim sviðum i einn mánuð árið 1923. Slys á ferðalögum. 23. júlí 1923. Stórkostlegt bifreiða- slys í Gautaborg i Svíþjóð. Járnbraut- arlest rekst á bifreið. Af 35 manns, sem í henni voru, biðu 9 bana, að eins 4 sluppu heilir á húfi. 30. júli. Mesta járnbrautarslys er sög- ur fara af. Við Plevna í Búlgariu ók hraðlest á aðra Jest. Um 200 manns biðu bana og milli 200 og 300 særðust. 2. ágúst. Stór bifreið með 50 börn,

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.