Ljósvakinn - 01.03.1924, Side 3

Ljósvakinn - 01.03.1924, Side 3
LJÓSVAKINN 19 er voru aö fara skemtiferð út i skóg, varð fyrir slysi nálægt Harleden í Eng- landi, 32 börn mistu lífið strax, 10 dóu síðar. 13. ágúst. Járnbrautarslys í Colorado. 9 manns biðu bana. 14. ágúst. Stór lystibifreið steyptist í gær niður brekkuna i Saint Sauweur í Frakklandi. 23 manns biðu bana. — Þeir, er fórust voru hollenskir, píla- grimar, er voru á leið til Loaurdes. 18. ágúst. í gær hvolfdi hvirfilvindur báti á Wuchelfljótinu. Af 37 manns björguðust að eins 3 börn. 26. ágúst. Nálægt Roskaja varð járn- brautarslys. 21 manns biðu bana, marg- ir særðust. 28. ágúst. Warschau-hraðlestin ekur út í fljót. Hér um bil 100 farþegar drukna, milli 200 og 300 særðust. Þetta er í sannleika hræðilegur listi. Þrjú mestu járnbrautarslys er sögur fara af hafa orðið á einum einasta mánuði. Járnbrautarslys verða æ tíðari og tiðari. Árekstur, ógnanir og dauði án augnabliksfyrirvara skeður á hinum risavöxnu samgöngutækjum og er »tákn tímanna«. Sjávarslys. »Og á jörðinni mun verða angist meðal þjóðanna i ráðaleysi við dunur hafs og brimgný«. Það, sem hér fer á eftir, sýnir einnig mjög vel hverfulleik Hfsins og uppfyilingu spádóma Jesú. 15. ágúst 1923. Geysislór flóðbylgja hefir skolað burt húsum svo hundruð- um skiftir á norðvesturströnd Kóreu. Fregnin segir að yfir 100 manns hafi farist. 18. ágúst. Slys hefir orðið á mörgum skipum á höfninni i Hong-kong. Margt manna hehr druknað. 20. ágúst. í fylkinu Molaba i Ind- landi hefir hlaupið slíkur geysivöxtur í árnar Batioptan og Palayangii að þær hafa flætt yfir bakka sina svo að vatn- ið hefir orðið 20 feta djúpt. Yfir 400 hús og nokkur þorp hafa eyðilagst. — Rúmlega 200 fjölskyldur eru húsviltar og tala þeirra er farist hafa, skiftir mörgum þúsundum. Frá Kalkutta er simritað til blaðsins »Times«: Stórfljótið Birma hefir flætt yfir bakka sína í ákafri rigningu. Yfir 12000 manns eru húsviltír og verða að leita ásjár stjórnarinnar. Peir er farist hafa eru mjög margir. Þetta er mesta vatnsflóð er kornið hefir síðan 1892. Aðfaranótt hins 31. ágúst. Fellibylur og flóðalda hefir geysað á vesturströnd Danmerkur, alla leið frá Höjer til Varde. 200 tunna land er hulið vatni. Milli 200 og 300 skepnur bafa druknað og 15—20 manns. Dagblöðin telja þetta mesla fellibyl er komið hefir I mörg hundruð ár. í guðsorði stendur, að þegar menn- irnir heyra boðskapinu um endurkomu Kiists, boðaðan í sambandi við upp- fyllingu spádómanna, muni þeir segja: »Alt stendur við sama eins og frá upp- hafi veraldar«. 2. Pét. 3, 4. En hvaða heimildir hafa menn fyrir sliku? Hröð- um skrefum vex alt það er bendir á, að vitjunartimi Guðs sé í nánd. Jesús vill að vér skulum vita hið sanna. — »Þannig skuluð þér og vita, að þegar þér sjáið þetta fram koma, er guðsriki í nánd«. Lúk. 21, 31. Guðsriki kemur! Hversu dýrðlegur boðskapurl — Þetta er fagnaðarerindi Jesú til handa sjúkri og farlama ver- öld er riðar á grundvelli sinum. »En gætið sjálfra yðar, að hjörtu yð- ar ofþyngist ekki við svall og drykkju-

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.