Máni - 29.01.1917, Side 4

Máni - 29.01.1917, Side 4
io M Á N 1 Heimsækið „Fjallkonuna”, Laug-aveg' 23. Fá dýr er dagur runninn og dimman er alt í kring, vappaðu með mór, væna, á Venusar hrossaþing. — S. S. iEfintýri á gönguför. i. Dulheyrnir. Máninn var nýkominn á fætur. Hann fékk sér „morguntúr" niður í Austurstræti. SLaðnæmdist hjá Landsbankanum. í því heyrði hann mannamál á hægri hlið. Hann hlustaði, því að hann hefir svo gaman af að standa á hleri. „Ég tilkynni yður hér með, herra minn, að frá því í dag að teija er yður sagt upp stöðu yðar hér“. „Nú, af hvaða ástæðum?" „Ástæðum ?“ „Já, ég tel mig eiga heimtingu á að fá að vita ástæðurnar". „Ástœður eru engar*. „Ég álít slíka ráðstöfun undarlega að ástæðulausu". „Eg læt yður vita, herra minn, að óg vil að mér sé hiýtt. Og ef þér ekki hlýðið mér tafarlaust, legg ég nú þegar af mér hatt minn og kjól og fer heim“. „Gott og vel, yðar hátign. En með yðar leyfi, vil ég tilkynna yður, að mér þykir það nú ekki svo fjarska leiðinlegt. En ef yður þykir það sárt, fyndist mór ekki nema sjálfsagt að þér færuð með hvort- tveggja, hattinn og kjólinn með yður“. „Engin smánaryrði í minn garð, herra minn. Víkið samstundis á braut frá augum mér. En svo að þér ekki standið í þeirri meiningu, að ég geri þetta af illum hvötum, eða af eigin geðþótta, skal ég tilkynna yður að flokkurinn vill svo vera láta“. „Hvaða flokkur?" „Minn flokkur. Og á morgun kemur hér maður í yðar sæti, sem er alls góðs maklegur. Ég vona að þér áfellið mig ekki fyrir þetta. Verið þér sælirl“ Út kom maður. í för með honujn slóst unglegur maður meb gleraugu, sem hafði beðið hans á tröpp- unum við dyrnar. Þeir höfðu hljóðskraf og kinkuðu kolli hvor til annars. Máninn gekk í humátt á eftir þeim upp undir Skólavörðustíg. Síðan sneri hann við, til þess að leita fleiri æflntýra. II. Á skjánum. Máninn guðaði eitt kvöld á skjáinn hjá skólanefnd- inni. „Hér sé guð“, sagði hann. Svona hafði hann lært að heilsa á glugga í sveitinni. „Guð blessi þig“, var svarað innifyrir, í geistleg- um tón. „Hvað er þér á höndum?“, spurði önnur rödd, með eigi minni helgiblæ en hin fyrri. „Ég er bara að leita æfintýra, eins og fleiri á kvöldin. En hverjir ráða hér húsum?" „Það er skólanefndin. Og hún vill hafa frið vib sín störf. En hver er gesturinn?" „Máni heiti óg“. „Blessaður farðu á burtu undir eins, því ef þú kemur inn hverfur þú alveg. Sú birta, sem kringum oss skín er meiri en þín. Við höfum sem sé gas“. „Fyrirgefið herrar mínir, mitt ljós er mór ekki svo útbært. Ég vil gjarnan lýsa þeim, sem Ijósvana eru. En þið þurfið þess ekki með. Þið haflð gus. Sælir!" „Farðu hvert sem þú vilt. Mikill bölvaður skjáhrafn er hann annars þessi máni“, heyrði hann tautað inn- an við gluggann, með hertogahreim í röddinni. Máninn glotti sem honum er tamt. Hann færði sig upp fyrir efstu rúðuna, svo þeir sáu hann ekki. En hann sá þá og heyrði til þeirra. Hvað hann sá, og hvað hann heyrði, vill hann sem minst tala um. Þeir töluðu um Jörund og pólitíkina, Hallgrím og Helgakverið. Éað, sem þeir samþyktu, samþyktu þeir einhljóða. „Helgu bræður, helgum oss í vorum sannleika, vor breytni er réttlæti, og vort orð er sannleikur". sagði hertoginn. Síðan sungu þeir útgöngusálminn, og út gengu þeir. Máninn glotti á eftir þeim, en þeir sáu það ekki. Svo gaf hann þeim langt nef. Hrafn.

x

Máni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Máni
https://timarit.is/publication/492

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.