Máni - 21.02.1917, Page 4

Máni - 21.02.1917, Page 4
M Á N I Góður sonur, Í8 „Eg held íylli fjórar stofur minni fjölskylda en ég og konumynd. Komdu við hjá kaupmanninum Titlstar, karl sá hefir ærið vítt um sig, ellegar hjá okraranum, Dritstar, ég hef varla nógu rúmt um mig“. Kvaddi ég og heim til heldri granna hélt, og bað þá geyma kroppinn minn. Ekkert skot var innan þeirra ranna afgangs — fyrir minsta titlinginn. Hef ég því með hundum úti iegið hálfan mánuð, lasin, köld og svöng. Jessen hefir afar-illa vegið allan matinn, vogin er svo röng. Nú er komið bréf frá borgarstjóra, bendir hann mér nú á skotið mitt, segir hann ég eigi enn að tóra að eins fyrir hjartalagið sitt. „Yér höfum af Elíasi eina afar-stóra síldartunnu keypt, meistararnir, milli tveggja steina mitt í holti fengu hana greypt. Fjórar stofur eru inn í henni, og í hverri stofu lítil hlóð, að og frá ég ætlast til að renni ykkar vatn og skolp úr bæjarlóð. Byggingarsamþykt í botninn var troðið, blása mun varla inn né skafa, þjóðráð og heilbrigðissamþykt var soðið saman í sponsgöt og milli stafa". Ait þig blessi borgarstjóri góður! Bæjarstjórnin lifi-tra-la-la! Eg er flutt. Og allur þessi óður er til lofs þér —falla-ralla-ra! Fjórbýli mér finst í tunnu betra forarskoti með fram götunni. Eg er orðin eldri’ en tveggja vetra, óska hinum góðs í dýrðinni! „Heyrðu, mútter. Ég get ekki lengur haft þig í þjónustu minni, hefi engan tíma til þess að sinna þér. Get líka fengið mann mér óviðkomandi, og sem ekkert heflr gert fyrir mig, til þess að taka þitt starf að sér. Eg veit að þú getur fengið nóg að gera hjá vanda- iausum. Árni og Bjarni eru búnir að kaupa Langa- Ranghala af Helga, og þeir þurfa sjálfsagt að fá ein- hverja kerlingu til þess að skúra, og svo verður mikil atvinna við hús þeirra Nathans og Olsens, og svo síld í sumar. Systir mín vill reyndar helzt senda þig upp í sveit, því þar „passirðu" bezt. Hún segist ekki geta hugsað til þess að fara að kynna þig mentuðum „fínans- mönnum", sem hún kanske kynnist, þú sem ekki einu sinni talar óhikað dönsku. Eg hefi líka svo mikið við mína peninga að gera, að eg get alls ekki verið að leggja þá í svona vitleysu. Eg þarf að gefa „stóra peninga" með frú Rikss og krakkanum, því þó eg gefi henni hann alveg þá vill hún samt fá með honum alla æfi, og svo er hann Vigfús gamli af Nesinu alt af að „rukka" mig um meðgjöfina með krakkanum hennar dóttur sinnar. Svo verð ég að hjálpa honum N. að gefa með krakkanum hans, og svo ætlar R, að sigla, og ég þarf að hjálpa henni og gefa vel með krakkanum okkar; já, bara að fjandinn hann Ólsi meðgangi nú þetta, svo eg fái það ekki líka, og svo þarf ég að sjá vel um hann föður minn, af því hann hugsaði aldrei neitt um mig meðan ég var að alast upp. En þá vanst þú fyrir okkur öllum krökkunum og honum, og mér finst bezt að hafa þetta svona". „Ja, en, ja, en. Ég þarf ekkert“. „Ja, en. Ég hefi ákveðið þetta, og ég má ekki vera að eyða mínum tíma í neinar stælur. Eg þarf að taka á móti mín- um gestum, sem ég hefi lofað „sjús“. Svona, út. Eg loka. Eg þarf líka að fiýta mér að „hringja upp“ læknisfrúna". (Fundið á götunni). Refirnir i Mongólíinu. Þar hefir mjög einkennileg refategund mikinn usla gert og íbúunum þungar búsifjar á ýmsan hátt. Hafa þeir bitið búpening bænda til skemda, svo landslýðn- um var um hríð illa viðvært, en heflr þó að mestu

x

Máni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Máni
https://timarit.is/publication/492

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.