Máni - 21.02.1917, Blaðsíða 5

Máni - 21.02.1917, Blaðsíða 5
M Á N I 19 ómeiddur undan komist, fyrir þá sök að hann varð undantekningarlítið samtaka gegn þessum ófögnuði, og gat því spornað við frekara þjóðartjóni. Annars er sagt, að helztu náttúruvísindamenn vorra tíma telji refategund þessa mjög einkennilega og sérstaka í sinni röð. Kvað þeim teljast svo til, að á íslandi hafi sú tegund refa verið á dögum Gissurar jarls, en um það bil er hann dó, liðið undir lok. En svo hefði hún aftur komið fram á dögum Gissurar Einarssonar biskups. En síðan ekki orðið vart fyr en í Mongólíinu. Einn merkur dýrafræðingur kvað hafa stungið upp á því, að kalla þetta refakyn Gissurana, vegna sagna þeirra, er menn hafa um uppruna þess. Nú eru þeir taldir aldauða, þó kvað einn hafa sézt eigi alls fyrir löngu, eftir síðustu fregnum. Er mælt, að þeir hafi ætlað með áfergi mikilli og hamagangi að ráðast inn yfir Kínverjamúrinn, en á stökkinu yfir rekið krúnurnar svo hraparlega á múrbrýrnar, að þeir þeir hefðu fallið öngvita til jarðar, og íbúarnir svo gengið milli bols og höfuðs á þeim. Yonandi að ísland eigi ekki þá óhamingju fyrir höndum, að þessir svokölluðu Gissurar rísi hér upp aftur. Zoolog. Hálkan. Hálkan var orðin háskaleg, herfilega voðaleg. Stúlkurnar á strætunum stungu niður hœlunum, — Og bæjarstjórnin blessuð var að bera vatn á göturnar. Út af þessum ósköpum ýmsir spáðu kynvillum. Ýmsir grétu, en aðrir létu sér ekki bregða þótt ylti margt á höfuðið. Ýmsir hlógu, en aðrir slógu þá aðra’ er stóðu’ um glerstrætið. Götuna Lalli labbaði, langaði’ að fá sér áfengi, af því kæra konan hans komin var til Andalands. En Bankastræti bölvað er að brúka fyrir rennigler, sérstaklega á síðkvöldum, svona af vissum ástæðum. — Þótt oft sé gaman að ganga saman og gamna sér á strætunum. — Og minst er varði hann lá, en hjarði í líksárum hjá Turninum. Upp gaut Lalli augunum, ekkert líkur draugunum, og leit við sína hægri hlið — hýrnaði við gamanið — þar var komin kona ný kjörlegust í þessum bý, sem hafði runnið á r...inum rétt onaf Laugaveginum. Hvort hann þagði eða hvað hann sagði — með hlátursbragði. Eg held það komi engum við. En hún snerist eins og gerist í ýsuveri um lágnættíð. Þarna hýmdu þau hlæjandi, hrópandi og æjandi. Ei þau máttu af öðru sjá og ekki þá sem gengu hjá. „Heyrðu, góða geislalín, guð vill að þú verðir mín fyrst í hálku hendingum hittumst við hjá Turninum. Þig vil eg eiga, en aðeins mega þér unna Yeiga sem mjúkhentur mannvinur". Þar ijúft var gaman að gista saman. En lóðargjaldið tók Guðmundur. Rétt í því kom ráðhollur reglu-tra-ia-Sigurður, og sagðist vilja semja um I

x

Máni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Máni
https://timarit.is/publication/492

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.