Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.07.1899, Síða 4

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.07.1899, Síða 4
í júní mánuði hef jeg ekki talið þá, sem á fund komu, því svo margir voru farnir úr bænum og allmargir eru og þeir sem ekki tíma að gefa guði cinn klukkutíma á viku, svo ekki er til nokk- urs að halda fund fyrir þá. — Stúlkufundirnir eru allt af vel sóttir. Þær vildu ekkert fundahlje hafa. Kristilegt fjeiag' ungra manna. Ilvad et pvllkt f/'elagp Það er söfnuður ungra manna, sem samkvæmt heilagri ritn- ingu vilja trúa á Jesúm Krist, frelsara vorn og hjálpa til að út- breiða hans ríki á jörðunni. Hvad er markmid slíks fjelags ? Það leitast við með meðölum, sem eru í samvæmi við heil- aga ritningu að vinna að sálusorg meðal hinna ungu. Mark- miðið er, að leiða unga menn til apturhvarfs og gjöra þá að trúum meðlimum kirkju sinnar og tryggum þjónum konungs konunganna. Er fjelagid sjdlft sjerstakt kirkjufjelag? Nei. Tilgangur þess er aðeins að hjálpa kirkjunni að starfa að heillum ungra manna, og vill á engan hátt dreifa heldur samansafna með henni. — Það leitast við af fremsta megni að efla trúarlegan, siðferðislegan, andlegan og líkam- legan þroska. Með hvaða meðölum r Með vekjandi ræðurn, biblíusamtali, fræðandi fyrirlestrum, samvinnu við heimilin með bæn og söng, hljóðfaíraslætti (mus- ik), stöðugu eptirliti með siðferði og framgöngu unglinganna, með kennslu í ýmsum námsgreinum, nreð líkamsæfingum þar sem því verður viðkomið. Ilvað segja menn um fjelagid? Biskuþ K. Krummacher segir: „Jeg þykist hafa ástæðu til að fullyrða, að hin kristilegu fjelög bæti úr verulegri þörf". Barthelemy Saint Hilaire: „Jeg óska að þessi fjelög breið- ist út um allan heim". M. Moody (hinn heimsfrægi prjedikari): „Ef menn spyrja mig hvort jcg trúi á slík fjelög, þá svara jeg: Já af öllu hjarta. Af guðs náð eru þau það, sem rneir en nokkuð annað hafa undirbúið mig undir starf mitt“. — Ilvað segir guðs orð ? Jeg skrifaði yður þjerýngismenn, því þjer eruð sterkir, hafið varðveitt guðs orð og hafið yfirunnið hinn vonda. i. Jóh. 2, 14. O IQC Fjelagsmyndin fæst fyrir aðeins 0 eina krónu. — q íW~ Sækið þær sem fyrst. q Allar upplýsingar viðvíkjandi fjelaginu gefur : FRIÐR. FRIÐRIKSSON. Grjótagötu 12. Glasgow-Prentsmiðjan.

x

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags
https://timarit.is/publication/493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.