Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.06.1900, Blaðsíða 6

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.06.1900, Blaðsíða 6
46 MÁNAÐAR'l'ÍÐINDI. II. ARG. félaganna og ögr þeirra, geta leitt yð- ur út !. Kallið á Jesús, sigurvegarann í eyðimörkinni og á Golgata, þegarþetta kemur. Látið hann liann hafa leyfi til að hjálpa yður, hann þekkir öll vjela- brögð óvinarins, og hefur sýnt, hvernig á að fara með hann. Þegar drengir lesa eða heyra um hershöfðingja, sem allt af vinnur sigur, og rekur óvinina á flótta og vinnur mörg hreystiverk, fer blóðið að renna hraðara í æðum þeirra, og þá tekur að langa til þess að kom- ast í stríð og berjast. Jesús er hinn stærsti sigurvegari; sigr- andi, og til þess að sigra gengur hann fram, og leiðir fylgdarlið sitt í sín lýs- andi fótspor til lífs og friðar. í baráttu og stríð getið þið komizt, þv! á hverjum degi þurfum vjer að berjast við sjálfa oss, á hverjum degi gjörir djöfullinn og sollur heimsins á- hlaup á oss. Það er því lffsnauðsyn fyrir oss, að hafa hershöfðingja voriv með. Án Drottins hjápar megnum vjer ekkert. Med Jesii móti óvinum, verður freist- ingin oss að gagni, því þá lærum vjer þolinmæði, og vinnist sigur á freisting- unni, kemur sigurgleði, lofgjörð og þakk- læti. Svo haldið yður ungu vinir fast við hinn sigurríka frelsara og syngið- af hjarta: »Jesús kallar : Verjið vígið ! Vaska drengja sveit, Láttu hljóma Ijúft á móti Loforð sterk og heit!«. ------<z>-------- Fleiri með en móti. Mikill her með hestúm og stríðs- vögnum umkringu lilta þorpið, Dotan, þar sem spámaðurinn Elísa dvaldi þeir ætluðu að taka hann og færa hann heiðingjakonunginum. Þjónn spámannsins, ungur sveinn, kom út um morguninn, sá herkvlna og skelfd-

x

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags
https://timarit.is/publication/493

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.