Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1926, Blaðsíða 7

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1926, Blaðsíða 7
5 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. LlTLl LÁVARÐURINN EPTIR F. H. BURNETT Nokkrum mínútum síðar fylgdi hár þjónn í einkennisbúningi Sedrik að bókasafnsdyr- unum, opnaði þær og sagði í hátíðlegum róm: „Fauntleroy lávarður, lávarður minn!“ -— Þótt hann væri aðeins þjónn fannst hon- um þetta samt hátíðlegt augnablik, er erf- inginn kom heim og var leiddur inn fyrir jarlinn, sem hann átti að erfa að eignum og nafnbót. Sedrik gekk inn í salinn. Það var ákaflega stórt og skrautlegt herbergi, með viðamikl- um útskomum eikitrjeshúsgögnum og stór- um bókaskápum, fullum af bókum. Húsgögn- in voru svo dökk, gluggatjöldin svo þykk, og gluggamir með tigulmynduðum rúðum voru í svo djúpum gluggakistum og það virtist svo langt endanna milli á salnum, að nú þegar sól var setzt, var allt fremur skuggalegt þar inni. Eitt augnablik hjelt Sedrik að enginn væri í salnum, en brátt sá hann að við eld, brenn- andi á víðum arni, var stór hægindastóll og að einhver sat í stólnum, sem leit ekki við fyrst í stað. En það var annar þar inni sem veitti komu hans eptirtekt. Á gólfinu við hæg- indastólinn lá hundur, ákaflega stór, gulmó- rauður hundur, næstum á stærð við Ijón; og þessi mikla skepna reis hægt upp og kom labbandi á móti litla drengnum. „Dúgal, komdu og ligðu kyr!“ sagði þá maðurinn í hægindastólnum. En Sedrik hafði aldrei verið hræðslu- gjarn; hræðsla og tortrygni áttu ekki heima í hjarta hans. Hann lagði höndina blátt áfram og hiklaust á háls stóra hundsins og svo gengu þeir báðir saman inn til jarlsins. Og þá leit jarlinn upp. Það sem Sedrik sá, var stór og hár gamall maður með stríðu hvítu hári og gráum augnabrúnum; nefið var hátt og bjúgt eins og amarnef, og aug- un djúp og snör. Það sem jarlinn sá, var yndisfagur drengur í dökkum flauelsfötum með breiðum knipplingakraga; hið mjúka, ljósa hár, fjell í liðuðum lokkum niður með undurfríðu og þó gerðarlegu andliti; vin- gjarnleikinn skein út úr hinum sakleysis- legu, björtu augum. Allt í einu var eins og blossaði upp í hjarta hins harðgeðja gamla jarls ofsafögnuður og undragleði, er hann sá hve þreklegur og fallegur drengur sonar- sonur hans var, og hversu djarfmannlegt upplit hans var, þar sem hann stóð fyrir framan hann með höndina hvílandi á hálsi stóra hundsins. Hinum ráðríka gamla að- alsmanni þótti vænt um að sjá að barnið sýndi enga feimni eða ótta, hvorki við hund- inn eða sjálfan hann. Sedrik leit á hann al- veg eins og hann hafði litið á hliðvarðar- konuna og ráðskonu hallarinnar, og kom al- veg upp að stólnum. „Ert þú jarlinn?" sagði hann. Jeg er sonarsonur þinn, sem hr. Havisham kom með, eins og þú veizt. Jeg er Fauntleroy lá- varður“. Hann rjetti honum höndina af því að hann þóttist vita að sú kurteisi væri sjálfsögð einnig við jarla. — „Jeg vona að þjer sjeuð frískur“, sagði hann mjög vinsamlega. „Mjer þykir mjög vænt um að sjá þig“. Jarlinn tók í hönd hans. Það var einkenni- legur svipur á andliti hans; hann var í fyrstu svo forviða, að hann vissi varla hvað hann átti að segja. Iiann starði á drenginn eins og einhverja undramynd, og virti hann fyrir sjer frá hvirfli til ilja. „Jæja, svo þjer þykir vænt um að sjá mig? sagði hann. „Já“, svaraði Fountleroy, „fjarska!“ Það stóð þar stóll rjett hjá og hann sett- ist niður á hann; það var bakhár stóll og er hann hafði hagrætt sjer í honum náði hann ekki ofan á gólf með fæturna, en það virtist fara vel um hann þar sem hann sat og horfði á sinn hátigna ættingja fast en þó frekjulaust. „Jeg hef mikið hugsað um, hvernig þú

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.