Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1926, Síða 10
8
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
væri eins og hann hafði ímyndað sjer. Það
var þess vegna að hann hafði skipað svo fyr-
ir, að drengurinn skyldi koma aleinn inn til
hans. í stærilæti sínu mátti hann ekki til
þess hugsa, að aðrir sæju vonbrigði hans,
ef hann ætti að verða fyrir þeim. Þegar svo
drengurinn gekk inn gólfið feimnislaus og
blátt áfram með höndina á hálsi stóra hunds-
ins, þá var næstum því eins og hið drembi-
láta, þrákelkna hjarta jarlsins, hoppaði í
honum af innri gleði. Jafnvel á þeim augna-
blikum, er hann hafði gjört sjer beztu vonir,
hafði honum aldrei dottið í hug, að sonar-
sonur hans yrði eins fallegur og gjörfilegur
eins og honum fannst hann, er hann fyrst
leit á hann. Honum fannst það næstum ótrú-
iegt, að þetta væri drengurinn, sem hann
iiafði kviðið fyrir að sjá — sonur þeirrar
konu, sem honum var svo sár-illa við. Þetta
kom svo alveg flatt upp á jarlinn, að hann
átti bágt með að átta sig á því.
Og svo byrjaði samtal þeirra, og samtalið
vakti hjá jarlinum óvenjulegar hugarhrær-
ingar og gjörði han meir og meir forviða. í
fyrsta lagi var hann orðinn svo vanur við að
sjá menn hikandi og hálfhrædda í nærveru
sinni, að honum kom ekki annað til hugar en
að sonarsonur hans mundi verða feiminn og
uppburðarlítill. En Sedrik var ekki hræddari
við jarlinn en hann hafði verið við Dúgal.
llann var ekki frekur; hann var aðeins sak-
laus og vingjarnlegur í lund, og var sjer
ekki meðvitandi, að hann hefði neina ástæðu
til að vera feiminn eða hræddur. Jarlinn
gat ekki komizt hjá að sjá að litli drengur-
inn leit á hann eins og vin sinn og hagaði
sjer eptir því, án þess að nokkur önnur hugs-
un gæti komizt að.
Ungur kennari á austurlandi, sem kom
mikið í K. F. U. M. á kennaraskóla árum
sínum, sendi nýlega 10 krónur í byggingar-
sjóðinn.
Frá fjelaginu.
Á fórnarfundiimm 3. Oetóber komu inn í
byggingarsjóð 130 krónur.
Þ. f). October kom maður með 30 krónur
tii byggingarsjóðsins; það var áheit.
Einn af meðlimum vorum hefur þann sið
að láta innfæra gjöf í byggingarsjóðinn til
minningar um látna vini. —
Máuaðarblaðið. Afgreiðsla þess er nú opin
á hverjum virkum degi kl. 12—1 og G —8
síðdegis. Þá er tekið á móti borgun fyrir
blaðið og afgreitt annað, er að því lýtur.
Sími nr. 437.
U-D-fundir eru haldnir á miðvikudags-
kvöldum kl. 8V2i og með tilliti til þeirra,
sem eru á kvöldskólum, eru líka fundir í
U-D á hverju sunnudagskvöldi kl. 6.
Allir piltar 14—17 ára eru sjálfsagðir á
þessa fundi, einnig drengir 1302 árs sem
ganga til fermingar, eru velkomnir. Meðlim-
ir deíldarinnar eru beðnir að fjölmenna og
eggja hver annan að koma.
Bókasafnið er nú opnað, og eru raeðlimir
minntir á að nota það vel.
Y-D-drengir, sem eru meðlimir safnsins eru
beðnir að fara vel með bækurnar og slcila
þeim reglulega.
K. F. U. M. í Vestmannaeyjum er nú með
miklu kappi að koma sjer upp fjelagshúsi og
er búizt við að það verði vígt bráðlega. Það
er mikill dugnaður af svo ungu fjelagi. Fje-
lagsmenn eru hinir ótrauðustu og sækja vel
fram. Það verður sagt nánar af því seinna.
Bókasafnið. Þeir sem kynnu að eiga góðar
bækur, sem þeir hafa lesið og hafa lítið rúm
hjá sjer fyrir þær, gætu gefið þær bókasafn-
inu og gjört með því mikið gagn. — Utlán af
safninu er á undan fundnnum.
Mánaðarblað K. F. U. M. kemur út einu sinni í mánuði. Kostar 2,50, aur. árg Upplag 3000 eintök
Afgr. 1 húai K. F. U. M., Amtmannsstig. AfgreiðsJum.: Ingvar Arnason. Utg.: K. F. U. M. Preutsm. Acta.