Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Qupperneq 6

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Qupperneq 6
4 MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. Frá fjelaginu. í maí hafa fundir tekið að strjálast eins og vant er. A uppstigningardag var haldin fermingarhátíð. Aðaldeildin bauð til sín ferm- ingardrengjum vorsins. Það var stór og rá tíðlegur fundur. Var fagurt að sjá þenna skara af ungum sveinum sitja þar saman ljómandi af fegurð æskunnar. Menn geta ekki annað en orðið hrærðir í hjarta af þeirri sjón við þá tilhugsun að nú eru þessir ungu sveinar að leggja af stað út í baráttu lífsins. Það var sæl samvera með saklausri gleði. Daginn eptir hjelt K. P. U. K. sína fermingarhátíð fyrir hinar ungu fermingarstúlkur safnaðanna. Það var einnig mjög skemtileg hátíðarstund. — Á annan í hvítasunnu hjelt K. F. U. M. í Hafnarfirði fermingarhátíð og var hún mjög vel sótt; og þann 27. var haldið samsæti fyrir fermingardrengina og urðu þannig tvær fermingarhátíðir haldnar þar. Vinna inn á landi voru er nú í fuilum gangi og má búast við góðri þátttöku á vinnu- kvöldum. Það eru svo blessunarríkar stundir, sem menn eiga þar saman, að sem flestir ættu að nota sjcr þetta samveru-tæki og koma þangað svo opt sem þeir geta. IJ-D. hefur inni á landræktarsvæði K. F. U. M. eitt horn til umráða og ræktunar. Þeir hafa þar blómgarð og er honum prýðilega fyrirkomið og verður fallegri ár fráári. í miðj- um reitnum er alþjóðarmerki K. F. U. M. útfyllt með blómum. Drengir vinna þar inn frá á mánuaagskvöldum. Það er ekki ónýtt fyrir drengi að hafa slíkan reit til ræktunar. Ekkert göfgar hugann og þroskar lyndisein- kunnina betur, en slíkt starf, og vellagað er það til að styrkja ástina á ættjörðunni og efla kærleikann til lifandi vera. Blómin eru mjög elskulegar lífsverur með sinni eigin duldu skynjan, og lærdómsríkt er að gefa gætur að vexti þeirra og ýmsum einkennum. Það ættu sem flestir U-D. piltar, sem geta komið því við, að taka þátt í þessu starfi. Valnr beið ósigur á vormótinu í þriðja flokki, en vann sigur í öðrum flokki. — Valsmenn og Valsungar, leggið sem bezt stund á æfingarnar í sumar en hafið meira fyrir augum það gagn, er fæst við æflngarn- ar, en sigurvinninga á kappmótum. Ýmar undirnefndir og úrvöl eru að starfl í sumar í ýmsum fjelagsmálum, og margskon- ar viðfang8efnum. Urval köllum vjer þá nefnd sem starfar að sama verki ár eftir ár og sem ekki er kosið eða skipað, heldur hef- ur myndast til ákveðins viðfangsefnis, og gangi einhver úr, fær úrvalið sjer mann í staðinn fyrir hinn fráfaranda eður fráfarna. Nefnd köllum vjer þá nefnd, sem skipuð er eða valin til einhvers starfa, og situr hún aðeins svo lengi, sem þarf til þess að ljúka hinu ák'veðna verki. SÖNGUR opt notaður á jarðræktarkvöldum: Nú syng jeg um svása foldu Með sólglæsta jökul-brá, Um ástkæra móðurmoldu Og marka’ hana skjöld minn á. Nú sýng jeg um fögru fjöllin Og fossanna regin-mátt, Um blessaðan blómstur-völlinn, Er brosir á sumri dátt. Nú syng jeg um fuglasönginn, Er svellur um móa og börð, Um hamranna glæfragöngin, Og glitrandi dögg á jörð. Nú syng jeg um sæinn víða Og svellandi brim rið strönd, Um skipin í blænum bliða Sem björg sækja og arð í hönd. Nú syng jeg um móður moldu Með minning og von i lund Um niðjanna fósturfoldu, Og feðranna dýru grund.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.