Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Síða 8

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Síða 8
6 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. nm. 1 sama bili heyrði hann kallað m&ð veikri röddu, rjett fyrir aptan sig: „Herra höfuðs- maður!“ Hann sneri sjer við. Það var bumbuslaginn litli. Hann lá í litlu rúmi, og breitt ofan á hann upp á brjóstið gróft gluggatjald rúðótt með rauðum og hvítum rúðum; handleggina hafði hann lagt ofan á þessa ábreiðu; hann var fölur og gugginn en augu hans tindruðu enn há eins og gimsteinar. „Ert þú hjema?" sagði höfuðsmaðurinn undrandi dálítið hörkulega. Gott, þú gjörð- ir skyldu þína“. „Jeg gjörði allt sem jeg gat“, svaraði drengurinn. „Varstu særður?“ sagði höfuðs- maðurinn og leitaði með augunum eptir liðs- foringja sínum þar nálægt sjer. „Við hverju mátti búast?“ sagði drengur- inn, sem eins og hresstist við að tala; hann fann dálítið til sín af því að hann hafði ver- ið særður í fyrsta sinn, og það var eins og það gæfi honum rjett til að tala við höfuðs- rnann sinn, sem hann annars hefði ekki þor- að að ávarpa. „Mjer gekk hlaupið vel fyrst, og jeg þandi mig, en svo komu þeir auga á mig allt í einu. Jeg hefði komizt 20 mínútum fyr, ef kúla hefði ekki hitt mig. En til allrar hamingju rakst jeg á höfuðsmann úr herráðinu og honum fjekk jeg blaðið. — Það var dálítið ei'fitt að komast áfram eptir vinahót kúl- unnar. Jeg var að deyja úr þorsta; jeg var dauðhræddur um að jeg myndi aldrei komast alla leið. Jeg grjet af gremju við þá hugsun að á hverri mínútu, sem jeg tefðist, kostaði það mannslíf. 1 stuttu máli. Jeg gjörði það som jeg gat. Jeg er ánægður. Eru með leyfi yðar, herra höfuðsmaður, þjer ættuð að gæta að; yður blæðir sjálfum“. Undan bindinu um höndina, sem hafði ver- ið fremur illa gjört, láku dropar af blóði fram á fingur höfuðsmannsins. „Mætti jeg ekki dytta að bindinu ofurlít- ið, höfuðsmaður. Rjettið fram höndina augnablik“. Höfuðsmaðurinn rjetti fram vinstri hönd- iita, og með hægri hendinni ætlaði hann að hjálpa drengnum að losa um hnútinn og binda hann aptur; en óðar en drengurinn hafði lypt sjer upp af koddanum, varð hann náfölur og mátti til að hníga niður aptur. „Það gjörir ekkert, það gjörir ekkert“, sagði höfuðsmaðurinn og dró að sjer særðu höndina, sem drengurinn var að reyna að halda í. „Gættu að sjálfum þjer, í staðinn fyrir að hugsa um aðra; því það sem er lítil- fjörlegt í fyrstu, getur orðið alvarlegt, ef það er vanrækt". Drengurinn hristi höfuðið. „En þú“ — sagði höfuðsmaðurinn og virti hann fyrir sjer með athygli, „þjer sjálfum hlýtur að hafa blætt mikið, þar sem þú ert svona veikburða?" „Blætt mikið?“ sagði drengurinn og brosti, „já og misst dálítið meira, en blóðið eitt; lítið þjer á!“ Hann fletti ofan af sjer ábreið- unni. Höfuðsmaðurinn hrökk eitt skref aptur á bak, svo brá honum. Drengurinn hafði aðeins annan fótinn; hinn hafði verið tekinn af rjett fyrir ofan hnjeð, og um stúfinn var bundið blóðugu trafi. Á þessu augnabliki gekk herlæknirinn fram hjá, lágur maður og gildur. Hann var snöggklæddur. „Já, herra höfuðsmaður", sagði hann og kinkaði kolli til drengsins. „Þetta tókst slysa- lega til; það hefði vel mátt bjarga fætinum, ef hann hefði ekki haldið áfram að hlaupa eins og vitlaus maður, eptir að hann særðist. Bannsett bólgan! Það mátti til að taka fót- inn af honum svo ofarlega. En hann er dáða- drengur, það get jeg fullyrt; ekki grjet hann eða hljóðaði. Jeg var hreykinn af því að hann var ítalskur drengur, meðan jeg var að taka af honum fótinn, það segi jeg satt. Það

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.