Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Síða 9

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.06.1929, Síða 9
MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. 7 er kröptug-t kyn að honum; það veit ham~ ingjan!“ Læknirinn þaut af stað. Höfuðsmaðurinn hleypti hvítu brúnunum sínum og starði fast á bumbuslagann. Síðan breiddi hann dúkinn ofan á hann aptur, og eins og í hálfgerðri leiðslu lypti hann hend- inni upp að höfði sjer, án þess að líta af drengnum, og tók ofan. „Iferra höfuðsmaður!“ hrópaði drengur- inn upp alveg forviða. vHvað eruð þjer að gjöra, herra höfuðsmaður? Fyrir mjer!“ Og þá, þessi harðlyndi hermaður, sem ann- ars aldrei sagði milt orð við nokkurn undir- mann sinn, hann sagði nú í ósegjanlega mild- um og ástúðlegum róm: „Já, fyrir þjer, jeg er ekki nema höfuðsmaður; þú ert hetja.!“ Síðan beygði hann sig niður að drengnum með útbreiddan faðminn, og kyssti hann þrisvar á hjartað. Ættjarðarást. þriðjud. 24. Fyrst sagan um bumbuslagann hefur hrært hjarta þitt, þá ætti það að vera auð- velt fyrir þig að gjöra prófritgjörðina þína um efnið: „Hvers vegna þú elskar Ítalíu“, íeglulega vel? Iivers vegna elska jeg Italíu? Koma ekki á augabragði hundrað svör inn í huga þinn. Jeg elska Ítalíu, af því að móð- ir mín var ítöisk; af því að blóðið sem renn- ur í æðurn mínum er ítalskt; af því að sú mold þar sem grafnir eru þeir dauðu, sem móðir. mín syrgir, og faðir minn virðir, er ítölsk; af því að bærinn, sem jeg var fæddur í, málið sem jeg tala, bækurnar, sem mennta mig — af því að bróðir minn og systir, fje- lr.gar mínir og leikbræður, hin stóra þjóð, sem jeg heyri til, og hin yndislega náttúra, sem er allt í kring um mig, og allt það sem jeg sje, það sem jeg elska, það sem jeg dái, í stuttu máli, það er allt ítalskt. Ó þú .getur ennþá ekki til fulls skilið þessa hugarhræring, eða fundið til hennar. En. þú rnunnt verða hennar var, þegar þú ert orðinn fulltíða; þegar þú ert á leiðinni heim úr löngu ferðalagi, eptir langa burtveru, og kem- ur upp einn morgun og gengur út að borð- stokknum á skipinu, og sjer í fjarska blána hin háu fjöll fósturjarðar þinnar; þá muntu fmna þessa kennd með þeirri ástúðaröldu sem þá mun streyma inn í hjarta þitt og fylla augu þín tárum. Þú munt finna þetta í einhverjum fjai'lægum stórbæ, er þú mitt inni í hinni ókunnuþröngheyrir nokkur ítölsk orð töluð af ókunnum verkamanni,er framhjá gengur, og finnur hjá þjer óviðráðanlega hvöt til að þjóta til hans eins og væri það bróðir þinn. Þú munt finna þetta í þeirri sáru og þóttafullu reiði, sem knýr blóðið fram í andlit þjer, er þú heyrir einlivern ó- kunnan lastmæla landi þínu. Þú munt finna enn sterkar til ættjarðarástar þinnar á þeim degi, er hótanir óvinaþjóðar kveikja upp ó- friðarbál á móti landi þínu, og þú sjer vopn blika á allar hliðar og æskumenn streyma til gunnfánanna til varnar, sjer feður kyssa syni, er leggja út í styrjöldina, með uppörf- unar oiðum, og heyrir mæður grátandi kveðja þá og segja: Vertu hugrakkur og sigraðu!“ Þú munt finna þetta sem guð- dómlega sælu, ef þjer skyldi auðnast að koma heim til ættborgar þinnar úr slíkri styrjöld, ásamt með herskörum hennar, þreyttum og iiia útleiknum, með óbætandi sköi’ð í röðun- um, en samt með ljóma sigurvinningarinnar lýsandi úr augunum, og fánana götótta af kúlum, og ásamt þeim stóran hóp af hraust- um fjelögum, sem bera reifuð höfuð hátt, þrátt fyrir afskotna limi og mikil örkuml, og sjer þá umkringda af hálfvitstola mann- mergð, sem stráir yfir þá blómum með bless- unarorðum ogfagnaðarlátum.Þá muntu skilja ættjarðarástina, finna til ættj arðarinnar í hjarta þínu. Hinrik minn. Þetta er stórkost- legt og heilagt mál. Hversu mundi jeg fagna, ef jeg sæi þig koma heim heilan á húfi úr orustu fyrir hana, hve mundi jeg þá gleðj- ast, þú sem ert augasteinn minn og yndi; en ef jeg þá kæmist að, að þú hefðir bjargað lífi þínu með því að draga þig í hlje, til þess

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.