Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Síða 4

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Síða 4
50 MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. djörfung, þurfum vjer að halda oss sem alli-a næst krossi Krists. Því meir og' inni- legar, sem vjer finnum til frelsisins, er vjer hlutum þar, í öllurn mikilleik þess, því meiri og meira knýjandi finnst oss þörfin á því að gjöra aðra hluttakandi í hinu sama frelsi. Því betur, sem vjer sjáum vorar eigin synd- ir og mikilleik frelsis þess, er vjer höfum hlotið, þess meiri verður löngun vor til þess að aðrir megi verða hluttakar frelsins og kraptarins, sem fæst með því. Því nær sem vjer liíum Kristi, Frelsara vorum, því betur opnast augu vor fyrir glöt- unarmöguleikanum, og því betur iinnum vjer til þess hve ákaflega áríðandi það er, að sál- irnar frelsist frá þeim ægilega og eilífa voða. Því meira, sem vjer eignumst af Kristi sjálf- um inn í líf vort, því eðlilegra og sjálfsagð- ara verður það fyrir oss, að vitna urn hann íyrir öðrum, með fullri djörfung. Fyrir sumum er ef til vill svo ástatt, að þeir eru sjer ekki meðvitandi um neina leynda synd og þeir gjöra sjer far um að lesa Guðs orð og njóta blessunar þess, en samt vantar þá djörfungina. Þeir eru niðurbeygð- ir út af þessu ástandi og spyrja: Hvað á jeg að gjöra? Hefur þú, sem svo er ástatt fyrir, nokkurn tíma reynt að sýna djörfungina? Hefur þú beðið Guð að gefa þjer hana og styrkja þig í henni? Það er eins með djörfungina og nug- hreystina eins og annað; sje það ekki æft og ekkert á það reynt, þá verður það þrótt- laust og óhæft til alls. En sje það notað og því haldið við, þá vex það og styrkist. Við apturhvarfið vaknar löngun, til að bera vitni um Jesú og lífið í honum, í sál þinni og frækorn djörfungarinnar lifnar þar um leið. Þá veltur allt á fyrir þjer, hvort þú hlúir að því og vaxtarmöguleikum þess; ef þú gjör- ir það, þá vex það til fullkominns þroska, en gjörir þú það ekki, þá deyr það út. Það þarf opt ekki að kosta mikið að vitna um Guð, á þeim stað er vjer störfum á eða dveljum í; þar sem Guð hefur sett oss í líf- inu, einmitt þar eigum vjer að bera honum vitni, og þá ekki hvað sízt með framkomu vorri og daglegri breytni. En stundum get- ur það líka kostað mikið, mannlega sjeð. að bera honum vitni og halda merki hans hátt, ekki sízt þar, sem þörfin fyrir það er einna mest. Þá reynir mikið á hugrekki og djörfung lærisveinanna, einkum ef þeir eru fáir og smáir í heimsins augum. Þannig stendur á einmitt nú á þessum tím- um, og þörfin fyrir djarfa og hughrausta lærisveina er meiri en opt áður. Vjer ætt- um því að íhuga, í fullri alvöru, afstöðu vora í þessu efni, nú þegar vjer leggjum út í vetr- arstarfið í fjelagi voru. Vjer getum ekki var- ist því, að oss virðist ekki sem bjartast yfir komandi starfstíma að ýmsu leyti. Vjer vit- um að baráttan harðnar og vjer höfum misst nokkra góða starfskrapta, er vjer höfðum ú að skipa, vegna atvinnu, náms eða arinara orsaka. Það reynir þá enn meira á þá, sem eptir eru og með tilliti til þess eru þessar línur ritaðar. Höfum þá hugföst orð spámannsins. Ver hughraustur allur landslýður, segir Drottinn og haldið áfram verkinu, því jeg er með yð- ur, segir Drottinn hersveitanna. s. Hvernig er pað bræður? Liggur ykkur ekkert á hjarta, sem þið haf ið löngun til að ræða um hjer í blaðinu? Eruð þið svo hugsjónalausir, eða sinnulaus- ir um hag, fyrirkomulag og framtíð fjelags vors og starfs, að þið látið ykkur engu skifta, eða finnið enga hvöt hjá ykkur til að ræða um það efni hjer í blaðinu? Þið ættuð að taka upp nýja háttu, og skrifa blaðinu, þegar ykkur dettur eitthvað gott í hug. Það yrði bæði ykkur og öðrum til gagns og'Antégju. Um hvað á að skrifa, spyrjið þið ef til vill ’ Það getur verið svo margt og erfitt að á- kveða nokkuð greinilega um það.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.