Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Side 7
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
53
lærisveina Ki ists. Ekki tekur hann samt læri-
sveina sína úr heiminum, þar sem þeir hafa
fengið köllun sína að lifa; öðru nær, hann
sendir þá út í heiminn til þess að vitna um
hann, jafnvel þótt það kosti lífið. Boðskap-
urinn, sem þeir flytja, enda þótt hann sje
ljós á vegum þeirra sem leita Guðs, getur
orðið að ásteytingarsteini og hneykslunarhellu
þeim, sem rísa upp á móti valdi Guðs.
Látum oss frammi fyrir Guði minnast:
Fjelags-starfsins í Asíu (sjer í lagi í Pale-
stínu, Kina, Japan og Indlandi.
Kínversku fjelögin biðja um meðbæn fyrir
stai'fi þeirra, fyrir ■starfsemi Dr. Sherwoods
Eddy á þessu hausti, að það beri ávexti bless-
unarinnar í ríkum mæli.
(fslenzku fjelögin minnist ólafs Ólafsson-
ar og starfsemi hans í Kína).
Biðjum einnig fyrir fjelögunum á ísafirði
og í Hnífsdal.
FIMMTUD. 15. NOV.
Fjársjóðtirinn í leirkerum.
Efes. 1, 3—6; — II. Kor. 4, 7—11; — Filip.
2, 5—8.
Hverjir erum vjer að eiga að framkvæma •
slíka hluti? Kirkjur vorar geta virzt mjög
veikar og lítilmótlegar, og sjálfir getum vjer
verið veikir og ófullkomnir boðberar, en
Kristur, sem tók á sig vort mannlega eðli,
kemur oss til hjálpar, þar sem hann trúir oss
fyrir andlegum auðæfum langt fram yfir
verðleika vora, svo að ríki hans megi breið-
ast út. Enda þótt nýir örðugleikar stöðugt
rísi upp og ósigrar virðist óhjákvæmilegir,
þá skulum vjer allt af hafa fyrir augum að
meistari vor dó á krossinum. Vjer megum
láta oss lynda kjör meistara vors, og einnig
kirkjan verður að bera sinn kross, en ósigur
hennar er aðeins ósigur í bili, en er um leið
sannur sigur.
Látum oss minnast frammi fyrir Guði.
Bræðra vorra í Ástralíu (sjer í lagi þeirra
á Nýja-Sjálandi).
Biðjum einnig fyrir fjelagsstarfinu í Garð-
inum og að nýtt líf mætti færast í kulnaðar
glæður á Sauðárkróki.
FÖSTUD. 16. NÖV.
Hið ósýnilega samfjelag.
Jóh. 3, 5—8; — 14, 15—17; — I. Kor. 12,
4—6, — 13.
Hin sanna kirkja Guðs er ósýnileg, svo aö
landamæri hennar verða ekki ákveðin af
mönnum. Guðs Andi, sem kom í fullum krapti
sínum á hvítasunnunni, styrkir ennþá og sam-
einar alla sanntrúaða, sem beygja sig undir
áhrif hans í bæn, í sakramentunum og gefa
sig alla algjörlega honum á vald. Þessir eru
þeir sem í raun og veru heyra til kirkju Guðs,
hinum lifandi líkama Krists, sem elskaði
söfnuð sinn og gaf sig sjálfan út fyrir hann.
1 þessari kirkju getur engin greining átt sjer
stað, enginn mismunur á þjóðum nje stjett-
um, og í þessari kirkju leggja einstaklingar
og fjelög fram sinn skerf til góðs fyrir heild-
ina.
Látum oss fyrir augliti Guðs minnast í
hæn: á fjelagsstarfið í Evrópu (Danmörk,
Stóra-Bretlandi, Norvegi, Svíþjóð, Islandi,
Evstrasaltslöndunum, Sviss).
Biðjum með þýzku bræðrunum að Biblían
megi ná tökum á æskulýðnum. (1 ár eru 400
ár síðan Lúther þýddi hana á þýzku).
Biðjum einnig fyrir fjelaginu á Akureyri
og undirbúningsstarfinu á Akranesi.
LAUGARD. 17. NÖV.
Hin fullkomna kirkja.
Jóh. 17, 24; — Matt. 24, 13; — I. Jóh. 3,
2—5; — Opinb. 21, 1—7.
Hjer í heimi geta vor nrannlegu augu að-
eins sjeð hina sýnilegu kirkju, ófullkomna,
sundurgreinda og' ofsótta; en sá dagur mun
koma, þegar hin ósýnilega og' sanna kirkja
opinberast. Kristur mun vinna úrslitasigur-
inn og með honum allir þeir, sem í hans nafni
hafa barizt, erfiðað og liðið. 1 þeirri borg
Guðs, þar sem Guð sjálfur er musterið og
Kristur hið fullnægjandi ljós, í borginni, þar