Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Blaðsíða 9

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.09.1934, Blaðsíða 9
MÁNAÐARBLAÐ k. f. u. m. 55 meðai stefnu og flokksfylgi, — tekur hinn mikli alvaldnr oss undir forsjá sína og vinn- ur bug á örðugleikum vorum og umskapar framtíð vora eptir sínum vilja. Veljum þá Jes- úm Krist að foringja vorum! Hann er sann- leikurinn. Hann er hreinleikinn. Enginn hef- ar getað sannað á hann nokkra synd. Líf hans allt sýnir skilyrðislausan kærleika »því meiri elsku hefir enginn en þá að hann lætur líf sitt fyrir vini sína«. Að hafa slíkan for- ingja, boðar frelsi fyrir einstaklinginn, fyrir Jijóð vora og alþjóð. Þess vegna verðum vjer, sem þekkjum hann sem foringja, að hjálpa öðrum til að velja hann líka. Ef vjer nú lítum yfir hina óskaplegu óreiðu í heiminum á, öllum sviðum, þá sjáum vjer að um tvennt er að velja; Krist eða óskapnað þann sem er. ö, að vjer gætum skilið alvöru tímanna og gefið oss að fullu og öllu undir forustu Jesú Krists, svo um oss mætti segja eins og sagt var um Tsrael forðum: »Drott- inn einn leiddi hann«. (V. Mós. 32, 12). Kr. Dbl. Sj. ------------ Pegar pú kemur í kirkju. 1 hvert skipti, sem þú kemur inn í Guðs hús, ættir þú, í staðinn fyrir að horfa rann- sóknaraugum um allt eptir sæti, að byrja með að beygja höfuð þitt í hljóðri bæn um blessuri yfir kirkjugöngu þína. Að því loknu taka þjer sæti svo kyrlátlega sem þjer er unt og varast að trufla nokkurn þeirra, sem á und- an þjer eru komnir. Pað hefur ávalt góð áhrif að s.já nærgætni og kurteisi, einnig í Guðs húsi. Það væri æskilegt að optar gæf- ist ástæða til að uleðjast yfir því, en verið hefur. Annars eru næg bænarefni þegar komið er í kirkju. 1. Bið um að allir þeir, sem komnii’ eru í kirkju hafi mikið og varanlegt gagn af allri guðsþ j ónustunni. 2. Bið um að presturinn fái hjálp Heilags Anda til að gjöra Jesú dýrðlegan fyrir til- heyrendunum. 3. Bið fyrir sjálfum þjer, að Drottin geti einangrað huga þinn svo að allar utanaðkom- andi og dreyfðar hugsanir útilokist. 4. Bið um hjálp gegn öllum erfiðleikum og freistingum komandi viku. 5. Bið um að fleiri og fleiri finni leiðina inn í Guðs ríki. 6. Bið um að þú, elcki aðeins verðir heyr- andi orðsins, heldur og gjörandi þess. Gakk þú því svo opt til Guðs borðs, sem þú getur. 7. Bið um að enginn þurfi að ganga heim frá kirkjunni eins og hjálparvana, húsviltur einstæðingur. Fundir eru nú byrjaðir í öllum deildum fjelags- ins. A-D á fimmtudagskvöldum kl. 8; síðd., O-D á sunnudagskvöldum kl. 8|, Y-D kl. 1| og V-D kl. 3 á sunnudögum. Sunnudagaskói- inn kl. 10 á sunnudagsmorgnana. K. F. U. K. hefur einnig byrjað fundi sína. A-D á föstudagskvöldum kl. 84, Ungmeyjadeildin á sunnudagskvöldum kl. 5?>. Saumafundir eru á þriðjudagskvöldum kl. 84. Kvöklskóli K. F. U. M. Hann byrjaði 13. starfsár sitt á þessu hausti. Skólinn var settur mánudaginn 1. okt. kl. 84 síðd. í stóra salnum í húsi fjelagsins. Voru þar viðstaddir um 140 manns. Skóla- stjóri, Sigurður Skúlason magister, hélt all- langa ræðu og gerði grein fyrir starfsemi Kvöldskólans. Hann sagði frá þeirri miklu aukningu, sem nú væri verið að gera á skól- anum vegna afar mikillar aðsóknar, ekki ein- ungis af hálfu Reykvíkinga, heldur og utan úr byggðum landsins. Vorið 1933 kvað hann

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.