Verði ljós - 01.03.1897, Blaðsíða 5

Verði ljós - 01.03.1897, Blaðsíða 5
37 arritum þeim, sem kend eru við Niceu-fundinn og Atanasíus. Þessir lærdómar hljóta að vera oss vesturlandabúum á 19. öldinni með öllu óskiljanlegir, nema vjer skoðum þá í ljósi þeirra tíma og þeirra kringumstæðna, sem hafa framleitt þá. Það, sem varð til þess að framleiða þessar játningar, voru skoðanir, er höfðu smeygt sjer inn í kirkjuna, en voru þess eðlis, að þær hefðu orðið til þess að veikja og síðan gjöreyða trúnni á guðdóm frelsarans, ef þær hefðu orðið ofan á. En til þess að koma í veg fyrir það, var komið fram með andstæðar skoðanir, er, án þess hið minsta að hirða um rökfræði- legar mótsagnir, hjeldu fastlega fram trúnni á guðdóm Krists. Til- gangur þeirra var ekki svo mjög sá, að útlista, sem að koma í veg fyrir útlistanir, til þess að varðveita trúna. Og þetta hafa játningarnar einnig gjört. í játningunum heíir trúin á Jesúm Krist sem guð, goymzt og varðveitzt frá kyni til kyns. En það leiðir þó af sjálfu sjer, að þessi trú stendur ekki nje fellur með játningunum. Trúin á Krist sem guð var til áður en játningarnar mynduðust. Og hún mun haldast við líði eins fyrir það, þótt játningarnar liðu undir lok. Þær eru nefnilega ekki annað en framleiðsli guðfræði- legrar íhugunar á grundvelli trúarinnar. En sjerhver íhugun, sem er, einnig hin kristilega, tilheyrir sínum tíma. Sanuleikskjarninn í þessu er óglatsamlogur, en hýðið utan um þennan kjarna, þ. e. skoðanir manna á því, hvernig eigi að skilja hann og útlista, þær taka sjer snið eptir hinum almenna hugsunarmáta hvers tíma. Eitt tímabil lítur öðrum augum á sama sannleikann en annað, af því það hugsar öðruvísi. Seinni tímum getur fundizt, að hinir grísku feður hafi framsett og varið trúna á Krist á ófullkominn, já óvið- unanlegan hátt. En með því ér trúnni sjálfri als ekki varpað fyrir borð. Þetta verður þar á móti þegar sjálfum sannleikskjarnanum er neitað, þegar staðhæft er: Kristur var ekki guð. Slík staðhæfing hefir á öllum öldum mætt trú og játningu safnaðarins. Með ein- stökum krapti hefir henni verið haldið fram á vorum dögum. Og vanalega er hún rökstudd á þessa lcið: Hinn endanlegi maður, sem á allar hliðar er einskorðaður og takmarkaður, getur ekki rúmað í sjer hinn eilífa og óendanlega, alfullkomna guð. — En þessi rökstuðning hefir aldrei og mun aldrei fá sjerlega á hinn kristna söfnuð. Hún byggist sem sje á ímyndun, sem ekki verður til sans vogar færð. Hún byggist á þeirri ímyndun, að oss sje svo gjör- kunnugt um eðli mannsins og eðli guðs, að vjer getum til fuls á- kveðið hlutfall þeirra sín á milli. En þetta er alveg skökk ímynd-

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.