Verði ljós - 01.03.1897, Page 9

Verði ljós - 01.03.1897, Page 9
41 Það gefur að skilja, að þar som hinar kirkjulcgu meinsemdir eru orðnar eins magnaðar og þær eru hjer, þar sem eins mikil vantrú og kæruleysi heíir fest rætur, þar sem eins mikil deyfð og drungi hefir gagntekið jafnvel þá menn, sem oinlæglega vilja tilheyra kirkjunni, þar sem kirkjurækni hcfirfarið eins aptur og þarsemvan- ræksla kvöldmáltíðarsakramentisins hefir farið eins sorglega í vöxt, og hjer hjá oss, — það gefur að skilja, að þar verður lækning mein- anna harla torsótt og heimtar langan tíma, mikla fyrirhöfn, mikla þolinmæði og mikla bæn. En sje starfað í lífandi trú á sigur, í lifandi kærleika til hjarðarinnar og með lifandi bæn uin krapt af hæðum, þá er starfið engan veginn vonlaust starf. Eitt hið fyrsta skilyrðið hlýtur að vera þetta, að sú presta- kynslóð, sem nú starfar, skilji betur köllunarverk sitt, hafi meiri áhuga á starfi sínu, sje gagnteknari af lifandi persónulegum krist- indómi, en kynslóðin næst á undan. Sje hún ekki það, cr ofur hætt við, að ávextirnir af starfi hennar vorði ekki glæsilegri en þeir ávextir af starfi hinnar undangengnu prestakynslóðar, sem vjer nú sjáum fyrir augum vorum. En svo cr guði fyrir þakkandi, að margt virðist benda á, að í þessu tilliti sje að breytast veður í lopti. Óánægjan, er á síðustu árum hefir svo optlega látið til sín heyra, kvartanirnar yfir voru kirkjulega ástandi af hálfu margra presta vorra, virðast bera talandi vott um þetta, enda þótt segja megi, að mörgum þeirra hafi ekki verið fyllilega ljóst, hverjar or- sakirnar hafi verið. Deyfðin, sem áður grúfði yfir vorri kirkjulegu landsbygð, virðist vera að hvorfa og mótsetningarnar smámsaman að skerpast. Það eru hinar sífjölgandi vantrúarraddir, sem hafa orðið til þess að vekja mcnn. Enþegar baráttan harðnar, koma mótsetn- ingarnar í Ijós, hveitið segir til sín og illgresið segir til sín. Yjer getum þakkað vantrúarmönnunum það, að margurmaðurinn, sem áður var ó- kunnugt um, hvar stæði í kristilegu tilliti, hefir komið fram, fundið sig knúðan til að frambera skýlausa játningu sina um það, hvar, hvoru megin og hvernig hann stæði. Hin vaxandi barátta milli trúar og vantrúar hefir þegar lcitt það í ljós, að kirkja Islands á meðal núlifandi starfsmanna sinna góða svoit trúrra þjóna, sem hafa einlægan vilja til að vera nýtir starfsmonn, vilja til að sá hinu góða guðsríkissæði í söfnuðunum og efla dýrð drottins bæði með kenningu sinni og lifi sínu, — monn, sem cnginn efi er á, að vilja ekkert vita meðal hjarðar sinnar, ncma Jesúm Krist kross- fostan. En þessi prcstasveit þarf að eflast og vaxa bæði inn á við og út á við, því að undir henni er vor kirkjulega framtíð komin.

x

Verði ljós

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.