Verði ljós - 01.03.1897, Side 12

Verði ljós - 01.03.1897, Side 12
44 Hvers þurfum vjer þá með? Vjerþurfum trúarsterkrar prestastjettar, semílííi sínu og kenningu lætur það ásjást, að hún veit á hvern hún trúir og hverj- um hún hefir helgað líf sitt og krapta. Vjer þurfum lifandi prestastjettar, sem ahlrei missir sjónar á takmarki því, ot hún á að keppa að, aldrei leggur hendurnar í kjöltu sína, en skundaráfram á skeiðvellinum, hugsandi um það eitt, að ná takmarkinu. Vjer þurfum vakandi prestastjettar, sem heíir opin augu fyrir því, hvar skórinn kreppir, hvar meinin dyljast, sem bæta þarf og vinna þarf bug á og hverjar orsakirnar eru, sem að þeim standa. Og loks þurfum vjer b i ð j a n d i prestastjettar, sem ávalt og í öllu leitar krapt- anna að ofan, sem í brennandi bæn leggur öll málefni sín og safn- aðanna og kirkjunnar sem heildar fram fyrir hinn eilífaföður. Bn trúarsterk, lifandi, vakandi og biðjandi prestastjett, það er prcsta- stjctt cptir hjarta Jesú Krists. En þegar kirkja íslands heíir hlotið slíka prestastjett, þá munu vor kirkjulegu mein smámsaman hverfa og lifandi kristindómur taka að breiða sig yfir bygð og býli, þá mun aptur ljóma bjart- ari dagur yfir kirkju lands vors. Um þetta eiga allir þcir að biðja, er af hjarta unna kirkju og kristindómi og eru sannfærðir um að heill þjóðar vorrar sje komin undir því, að þjóðin standi föst á grundvelli hinnar kristnu trúar. Sú bænin er góð og mun heyrð verða, ef vel er beðið. Stutt athugasemd. I grein þeirri um Tómas prófast Sœmundsson, er lesa má í „Sameiningunni41 (nr. 7, sept. 1896, bls. 98—106), segir höfundur- inn (eflaust sjera Jón Bjarnason), að sjer finnist það nærri því undrurn sæta, að sjera Tómas minnist aldrei á trú eða kristindóm í brjefum sínum til þeirra kunningja sinna, Konrábs Oíslasonar og Jónasar Hallgrímssonar; ennfremur, að sjera Tómas í brjefi sínu til Jónasar, rituðu í marzmánuði 1840, þar sem hann er að hug- hreysta Jónas sjúkan (á líkama og sálu), ekki með einu orði minnist á trúna og þá huggun, sem til hennar megi sækja. Á þeim árum, sem hjer ræðir um, var jeg í Khöfn samtíða þeim Fjölnismönnum — Brynjólfi, Konráði og Jónasi — og þeirn talsvert kunnugur, en einkum Konráði og Jónasi, er báðir voru skólabræður mínir frá Bessastöðum. Jeg dáðist, eins og fleiri, að gáfum þeirra allra þriggja, en við trú þeirra varð jeg aldrei var, cnda mun það satt

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.