Verði ljós - 01.03.1897, Side 15

Verði ljós - 01.03.1897, Side 15
47 sje Kristur og hann krossfestur, en búningurinn er misjafn. Ýms eru ritin frásögur, alvarlegar og eptirtoktaverðar, um áhrif kristin- dóms á yngri og eldri. Hjelt sjera Jón mjög af slíkum sögum og ætlaði, að þær mættu verða til áhrifa og andlegrar uppbyggingar eigi síður en almennar ræður og kenningar í nokkrum ritunum eru biblíuskýringar og eitt þeirra er útskýring yfir Ágsborgarjátn- inguna1. Ritin eru þannig næsta margvísleg að innihaldi og bún- ingi, þótt aðalefnið sje hið sama. Máli og rithætti cr auðvitað að ýmsu leyti ábótavant, en jeg hygg, að vart muni nokkur kynnast svo ritum þessum að hann fái ekki hlýtt hugarþel til hins guð- rækna og margfróða öldungs. Þær einkunnir höfundarins birtast báðar jöfnuin höndum hvar sem litið er í ritin — En sjera Jón gjörði og meira fyrir smáritafjelagið en einungis að rita fyrir það. I eili sinni stofnaði hann sjóð til útgáfu smárita, svo að þoim væri borgið þótt hans misti við. Fól hann sjóð þann til varðveizlu hin- um möhriska bræðrasöfnuði í Kaupmannahöfn. Áður en sjera Jón andaðist voru 67 nr. komin út af Smáritunum, en als urðu þau 80. Það var, eins og áður er sagt, mark og mið ^jera Jóns með ritum sínurn að glæða ljós kristindómsins í hjörtum Islendinga. En ekki hafði hann minni áhuga á því, að þetta ljós fengi skinið þeim þjóðum, er setið höfðu í myrkri og enn eigi átt kost á að heyra náðarboðskap kristindómsins. Þess vegna varð hann svo glaður við komu Hendersons, því að þær frjettir, er hann iiutti honum, voru einkum um kristniboð moðal heiðiuna þjóða. Fylgdi hann jafnan því málefni með lifandi áhuga, skrifaðist á við ýmsa útlenda kristniboðsvini um það mál, einkum þó við hinn góðfræga danska kristniboðsvin, ágætismanninn Itönne prest í Lyngby, stofn- anda hius danska Kristniboðsfjelags. Eru og allmargir af bækl- inguin smáritafjelagsins uin kristniboð og framgang þess meðal heiðingja. Sjálfur lagði hann og drjúgan skerf til kristniboðs og nokkrir aðrir, er hann hvatti til hins sama. Má í því efni sjer- staklega nefna tengdason hans, Hálfdán prófast á Eyri, er jafnan styrkti kristniboð erlendis með fjárframlögum. Ýmsir hinna útlendu kristniboðsvina, er höfðu haft spurnir af hinum islcnzka sveitapresti, er í afskektu hjeraði var að útbreiða og glæða Ijós ljósanna, langt frá liestum stuðningsatriðum til starfs síns, nema brennandi trú, hreinum kærleika á málefni kristindóms- ins og öruggri og lifandi von um sigur hins góða málefuis, urðu til þess að senda honum að gjöf fjölda útlendra bóka, þará meðal ýms ágæt guðfræðisrit. En allar þessar bækur gaf sjera Jón sóknar- kirkju sinni á Grund, er hann fluttist til Möðruvallaklausturs. Enda þótt að evangelisku smáritin sjeu það, er einkum heldur Af útlendum möuuum royndist Hendersou þvi eiukum lijálparuiaður og smúrita- íjelagið „Tract Society" í Lundúuum. ‘) Auk ajera Jóns rituðu ýmsir fleiri fyrir fjelagið, t. a. m. Jóu Espólín, Björn próíaatur Halldórsson (í Garði), Þorstoinn Hjálmarson (prófastur í Hítar- dal) o. fl.

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.