Verði ljós - 01.03.1899, Page 9

Verði ljós - 01.03.1899, Page 9
41 boð liaft um það, að þeir voru verkfæri i liendi hins illa. — Vann þá mykranna vald sigur? Nei, guði sé lof. £>að var annað afl, sem var enn sterkara en þeirra, annar visdómur, sem yfirvann kænskubrögð liins illa. Guð hafði af óendanlegum kærleika ákveðið að snúa mann- vonzkuverkinu í kærleiksvork, ósigrinum í sigur, smánardauðanum í friðþægingardauða föllnu mannkyni til viðreisnar. Öfund, hatur, van- trú, sjálft myrkranna vald á Golgata verður til þess að snúa bölvuninni upp i blessun og framkvæma ráðsályktun guðs um að frelsa alla menn frá synd og dauða. Hið versta verk, sem framið hefir verið: að myrða Jesúm Krist hinu réttláta, það verk, sem djöfullinn án efa hefir ætlast til, að mundi gera fullau aðskilnað milli guðs og manna, —- eudurgalt guð með eilíf- um kærleika og brúaði með krossi Krists hyldýpið, sem orðið var milli hans og mannanna fyrir syndina. Manndrápinu sneri guð upp í fórn- ardauða fyrir fólksins syndir. Dauði liius réttláta, sem djöfullinn ætlaði, að mundi steypa mönnum í eilífa glötun, varð nú íyrir kærleika guðs hin bezta sönnun fyrir því, að öllu er ekki lokið í dauðanum, heldur á hver sá eilíft líf fyrir höndum hinum megin grafarinuar, sem í trú gjör- ist lærisveinn hans, sem á föstudaginn lauga dó á Golgata, því að liaun reis upp frá dauðum, og sýudi þaunig öllum heimi, að hann var sterk- ari en dauðinn. — Þannig er þá ósigurinn brevttur í sigur ogkrossinn, smánarinnar merki, orðinn sæmdarmerki. Með krossmarkinu skreyta þjóðirnar sig og icristin kirkja þelckist hvervetna á því. — Að visu fa'r ekkert manulegt auga skygnst inn i þessa leyndardóma eða skilið krossgátuna til fulis, en reynsla ki-istinuar kirkju sýuir oss, að kristin- dómsius mikla tró stendur með ræturnar á Golgata; þaðau á kirkjan sin upptök. Það er margsannað, að þótt krossinn sé Gyðiugum hneyksli og Grikkjum heimska, þá megnar þó ekkert að friða liið órólega manns- hjarta eins og trúin á friðþægingardauða Jesú Krists. Að krossi hans hafa þúsundir og aftur þúsuudir krist-inna manna leitað og fundið þar svölun nú um nærfelt nitján aldir. Engin harmsaga, sem heimuriun á, hvort sem hún er gripin út úr mannlífinu eða tilbúin af ímyndunarafli mannsandans, er eins átakan- lega sorgleg eins og sagan frá Golgata, þar sem guðs útvalda þjóð deyðir son hins hæsta, frelsara sinn og alls mannkynsins. Hvílikan kærleika þarf til að snúa slíku í fögnuð. Og þó er þessi kærleik- ur til. Því að einmitt þessi liarmsaga er aðalþátturinn í liinum mikla fagnaðaiboðslcap, sem lærisveinar Krists nú flytja um heim allan. Synd- anna fyrirgefning fyrir blóð Krists runnið á krossinum, er ekki einmitt það kjarni evangelíisins ? Nú er fyrirgefniug og eilift lif boðið öllum mönnum, dauðinn yfirunninn, gröfiu orðin að hliði, sem liggur inn til eilífs lífs. Og það, sem hefir komið öllu þessu til leiðar, er kærleiki guðs. Þegar páskasólin rann upp skær og fögur, birti hún mönnunum, að kærleiki guðs er sterkasta aflið á jörð, og þvíhafakristuir

x

Verði ljós

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.