Verði ljós - 01.04.1899, Qupperneq 10

Verði ljós - 01.04.1899, Qupperneq 10
58 upphafi pistils þessa, svo að segja orðin einráð í hinni hitersku kirkju vorra tima. Innblástur ritningarinnar nær eftir þessari skoðun að eins til þess, sem fyrir oss kristna menn er aðalatriðið, þ. e. til hins sálu- lijálplega sannleika. I öllu, sem þar að lítur, er ritningin óskeikul. Inn- hlást.urinn verður þá í því fólginn, að guð hefir fyrir anda sinn veitt hinum helgu höfundum hæfileika til að tileinka sér innihald hjálpræðis- opiuherunarinnar og veitt þeim slíkan skilning á því, að vér getum til fulls reitt oss á það, sem þeir iiafa skrifað um þau efni. Þar á móti er innhlásturinn alls ekki fólginn i því að nema burt mannlegan ófull- komleika höfundanna í öllum greinum og veita þeim óskeikula þekkingu á þeim atriðum, er liggja íyrir utan lijálpraiðisopin beruniua, fyrir utan trúna. En þar eð nú hjálpræðisopinherunin hirtist í ritningunui á mis- munaudi stigi, í sumum rituin fyllri en sumum, leiðir þar af, að hinn guðlegi innblástur liöfundanna og ritanna verður mismunandi. Að hér hlýtur fyrst og íremst að verða stór munur á gamla og nýja testament- inu, er auðsætt, þar sem hið fyrra er aðallega undirbúandi, en liið sið- ara þar á móti birtir oss fyllingu opinberunarinnar, sjálft hið holdiklædda guðs orð, drottin Jesúm Krist. En það verður einuig munur á hinum einstöku ritum hins sama testamentis, alt eftir andagnótt þeirra; þannig sjáum vér stórmikinn mun á t. a. m. spádómsbók Esajasar og Esterarbók eða Mósesbókunum og Kionikubókunuin innau gamla testa- mentisins. Hið sama á sér að nokkru leyti einnig stað meðal rita nýja testamentisins, þótt misimmurinn sé þar livergi nærri eius mikill. En af þessari skoðun vorri á innblæstri ritningarinnar, leiðir þá einnig, að vér getum kannast við þversagnir og missögli hjá höfundum hinna helgu rita, án þess að það ríði í bága við iunblástur ritningarinnar. En veikist ekici grundvöllur trúar miunar, ef ég kannast hiklaust við ófullkomleika í ritningunni? Verð ég ekki, til þess að geta bygt á ritningunni trú mina og von um tíma og eilífð, að geta sagt: Hér er bók, sem í ölium greinum, hinum smærstu ekki síður en hiuum stærstu, er fullkondega óskeikul? Nei. Fyrst og fremst er þess að gæta, að euginn maður hefir nokkru sinni haft með höndum biblíu, er í öllum greinum væri fullkomiu; því flestir af oss hafa aldrei séð annað en út- leggingar af biblíunni, — og engin útlegging, jafnvel ekki liin allra vandaðasta, er fullkomin. Og þeir sem liafa haft með höndum frumtext- ana, hinu hebrezka og gríska texta ritningarinnar, vita að þeir eru ekki fullkomnir. Það er t. a. m. alkuunugt um nýja testamentið gríska, að í því einu eru yfir GO þúsund mismunandi leámátar (variantar) — þótt reyndar enginn þeirra geri eitt einasta af liðfuðatriðum trúarinnar vafa- samt. Nei, það er yfir höfuð að tala ekki þess háttar fullkomleiki ritn- ingarinnar, sem gefur henni hið guðdómlega algildi, lieldur er það sá fullkomleiki hennar, að húu gefur oss fullkomna upplýsingu viðvíkjandi öllu þvi, er snertir trúarsambaud vort við hinn lifandi guð, viðvíkjandi

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.