Verði ljós - 01.02.1900, Blaðsíða 5

Verði ljós - 01.02.1900, Blaðsíða 5
21 Og þessi kristilega hugsjónar-frummynd svífur ekki í lausu lofti nú á tímum. Tímarnir hafa — guði sé lof — breyzt síðan á viðreisnar- (renaissance-)öldinni, þegar heiðiugleg lífsnautn og óskammfeilinn laus- ungarháttur stal megin og merg frá sjálfri kristninni, svo að menn lótu sér fátt um finnast, þótt Kristur yrði að láta helmiug ríkisins af liendi við Júpíter og Apolló, — eða síðan á skynsemistrúaröldinni, þegar vín fagnaðareriudisins var orðið að bragðlausri blöndu og salt sannleikans kraftlaust, af því að menu höfðu blandað hann ýmis konar maunavaðli og mannarausi. Nú á timum fær ríki himnanna fyllilega notið sjálfstæðis síns, hvort heldur er gagnvart ókristilegri mannúðarstefnu eða mauuúð, sem kallar sig kristilega, en er það að eins að nafninu til. Súkynslóð, sem vér tilheyrum, er skoðuð frá kristilegu sjónarmiði hamingjusöm, — ekki sizt þegar hún er borin saman við eldri kynslóðir þessarar aldar. • Þeir tíinar eru liðnir, þegar pólitík og fagurfræði — eius og átti sér stað um naiðbik aldariunar — urðu til þess að skyggja á hinn lifandi kristiudóm, eða honum var breytt i hegelska heimspeki og siðan eius og flæmdur af landi brott inn í ríki hugsjáspekinnar eða eitthvað annað austur fyrir sólina og vestur fyrir máuann. Þau áhuga- efni, er einkum einkenna nútimann — liiu félagslegu (sociölu) — eru að Jiví leyti frábrugðin hinum pólitisku og fagurfræðilegu, að þau > slcyggja alls ekki á kristindóminn, heldur miklu fremur leitast við að hrinda lionum fram á sjóuarsviðið, fram í dagsbirtuua, fram í fylkingar- brjóstið. Og berum vér samau kjör æskulýðsins í kringum 1870 og nú á timum, — hvílíkur feiknamunur! í samauburði við oss lifði æskulýður þeirra tíma i riki hinna dauðu. Nýjatestamentis-gagnrýni og darvinska sviftu æskulýðinn merg og inætti — svo að hanu glataði bæði siðgæði og trú. Nú taka þjóðirnar aftur að lifna við fyrir kraft guðs anda og alt boðar nýjan og drotni helgaðan vordag hjálpræðisins. Yissulega er það gæfuhlutskifti að lifa á slikum timum! Ekki svo að skilja, að vér séum orðnir lausir við alla ágalla og anumarka eldri tíina. Mér kemur ekki til hugar að halda sliku fram. Það vantar engan veginn kirkjulegan og guðfræðilegan glundroða á yfirstandandi tíð; hér er enginn skortur á vatnsblandaðri skynsemistrú og smá- smyglislegu kreddurausi og raugskildum heimsflótta og ýmsu af líku tagi. En þegar ég lít til heildarinnar, dirfist ég að staðhæfa, að aldrei hafi æskulýðurinn átt að mæta fagnaðarerindinu jafn hreinu, samræmi- legu og sigursælu, og að aldrei hafi þvi verið Ijósara markmiðið, sem að er kept, en einmitt nú. Glundroðiun er nú kominn svo langt, að ekki er torvelt að sjá, að heimur er að myndast úr þessum óskapnaði (kaos). Og þessi heimur, þetta kristilega sannleikssamræmi, sern hér er að myndast, sanieinar i sér fagurlega þessar fjórar hliðar: hið sann-

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.