Trú - 01.10.1905, Side 1
MÁN AÐARRIT
UM KRISTILEGAN SANNLEIKA OG TRÚARLÍF.
II. ár.
IteykjaTÍk, október 1905.
Nr. 8.
Gleðilegar fréttir frá útlöndum.
(Niðurl.). Hvað er þetta, er fólkið ekki alt kristið, og
er það ekki einn trúarflokkurf Jú, einn trúarflokkur á það
að vera, — og það segist altsaman vera lúterskt. En hvort
það er kristið eins og við köllum, því vil eg svara þannig:
að minsta kosti ekki alt. En hvernig stendur á þvíf Eru
ekki kennifeðurnir vel frelsaðir og vel blessaðir af Drottni,
eins og t. d. í þeirn löndum, þar sem þetta mikla líf og fjör
er. Jú, eitt er það víst, að fæstir af þeim vilja viðurkenna
það, að þeir geti losnað svo við sína synd, að þeir elcki
syndgi þá óafvitanlega, ef ekki vitanlega. Nú, það er skrítið.
Muna þeir ekki hvað stendur í St. Páls pistli til Rómverja
6. kap., i.—14. v.
„Hvað eigum vér þá að segjaf Eigum vér að liggja í
syndinni, svo náðin yfirgnæfif Fjarri sé það. Vér, sem er-
um dauðir syndinni, hvernig skyldum vér framar lifa í hennif
Eða vitið þér ekki, að vér, svo margir sem skírðir erum til
Jesú Krists, erum skírðir til hansdauðaf Vér erum því greftr-
aðir með honum fyrir skírnina til dauðans, svo að eins og
Kristur uppreis frá dauðum fyrir dýrð föðursins, svo eigum
vér einnig að ganga í endurnýjungu lífsins. Því séum vér
orðnir samgrónir líkingu dauða hans, munum vér einnig verða
samgrónir (líkingu) upprisu hans. Þvi að vér vitum þetta, að
vor gamli maður er með honum krossfestur, svo að líkami
syndarinnar eyddist, og vér þjónum ekki syndinni framar.
Því sá sem dauður er, hann er réttlættur frá syndinni. En
ef ver erum dauðir með Kristó, þá trúum vér því, að
vér munurn einnig með honum lifa, vitandi það, að Kristur,