Trú - 01.10.1905, Page 3

Trú - 01.10.1905, Page 3
T R Ú . 59 víst hægt að telja þá, ef þeir eru nokkrir. Eg skal segja þér dálítið um það, sem eg hef séð og heyrt afþeim, enþað vil eg taka fram, að það eru ekki allir, sem drekka og hafa blá og bólgin augu. En suma hef eg talað við, og af þeirra samtali hafa þeir ekki verið of sterkir, í þeirri merkingu að skilja, hvað endurfæðing þýði í orðsins fylstu merkingu. En cg tala þá ekki um tóbak, því eg held að þeir haldi að það sé ekki nein synd að brúka það, því eg hef mætt þeim reykjandi úti á götum bæjarins. Nei, er það mögulegt, gera þeir það? Muna þeir ekki hvað stendur í Guðs orði: „Saurg- ið ekki Guðs musteri", og þetta musteri eru þeir sjálfir. Nú skal mig ekki furða þó að ísland sé svo kalt, það mun vera of norðarlega, það lætur nfl. ekki þann heilaga ráða og ríkja í hjörtum sínum, eins kröftuglega og hann vill sjalfur. Þetta er það sem að er. ísland er þiðnað að nokkru leyti, en klakinn stendur ennþá of djúpt. Já, það sem nú þarf með, er það, að Guð sendi sinn heilaga anda og eld af himni til þess að bræða allan klaka og kulda, því við sjáum t. d., að þegar að járnsmiðurinn vill búa eitthvað til úr járninu sínu, þá hitar hann það fyrst, og svo getur hann beygt það og sveigt eins og hann vill. Og svona mun það vera fyrir Guði, að þegar hann er búinn að fá leyfi til að mýkja svo manneskjuna, að hann geti fengið leyfi til að beygja hana og sveigja eftir þörfum, þá myndi hún hafa annað líf en hún hefur. Látum okkur nú biðja Guð fyrir stjórn okkar og þeim, sem eiga að gæta lamba hans, eins og Drottinn sjálfur sagt hefir til sinna post- ula: „Gæt þú lamba minna", því ef þeir sjálfir eru ekki vak- andi þegar hann kemur, munu þeir fyrirfarast eins og hinir. Og látum oss þá biðja, að Drottinn Jesús Kristur sendi þá heilags anda öldu yfir ísland, svo það geti reglulega þiðnað fyrir alvöru, og hann geti brúkað það eftir sinni vild. Já, megi því nú prestar og prédikarar og hverra helzt trúboðs- flokkar sem hér eru á íslandi, biðja Guð að hjálpa því, áður en það er eilíflega of seint. m

x

Trú

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Trú
https://timarit.is/publication/514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.