Trú - 01.01.1906, Qupperneq 5

Trú - 01.01.1906, Qupperneq 5
T R U . 85 ástæður hjá honum. En það sorglegasta af því öllu var, þegar við komum til séra Fr. Fr. Jú, hann vildi gjarnan að þetta fyrirtæki heppnaðist, en hann vildi ekki gefa sitt já- yrði til, að allir trúarflokkarnir fengju leyfi til að taka þátt í samkomunum í Melsteðshúsi. Nei, það voru að eins þeir af þeim lúthersku, sem honum þótti þar til hæfir. Hér vantaði bróðurkærleikann og einingarbandið, sem Drottinn vill, að við skulum hafa hver til annars. En svo seint um síðir lézt hann vilja vera ineð, en hann sagðist ekki hafa tíma til þess, því að liann þyrfti að undirbúa sig til að tala á afmælisfundi, sem átti að vera hjá honum það kvöld. Og svo skildu þeir við svo búið; nema hvað maðurinn fann, að það var ekki sa rétti samvinnuandi í honum, eins og Drottinn vill að sé t hans útvöldu. Nú byrjaði þessi fundur, og gekk fremur vel, þótt sum- ir væru nokkuð hræddir um, að það væri ekki eins heppi- legt, að allir þessir trúarflokkar ynnu til sanians. En svo kom það fyrir, að ómögulegt væri að fá nógu stóran sal í Reykjavík, þar sem allir gætu unnið saman. Svo konnv þeir sér saman um, að þeir gætu verið hver á sínum stað, sem hefðu hús til þess, og svo var ákveðið, að það yrði- haft í þessum þremur stöðum: Betel, Melsteðshúsi og Her- kastalanum. En áður en fundi var slitið, var kosin átta manna nefnd, sem sKyldi koma saman næsta dag hjá hr. cand. theol. Sigurbirni Á Gíslasyni, sem var einn af nefnd- armönnum. Og eftir það var fundi slitið með söng og bænaávarpi til Drottins. Næsta dag mættu allir, sem í nefndinni voru, nema einn, og þar með sú aðvörun, að tveir af trúarbræðrunum fengju ekki leyfi til að tala i Melsteðshúsi. Svo nú er brotinn fyrsti hlekkurinn í þessu einingarbandi, sem átti að vera. Og það var sorglegast, að séra Fr. Fr. skyldi vera orsök í því. Eiv nú var samt ekki hætt við svo búið, heldur var haldið á- fram í Drottins nafni, svo að þetta sár mætti gróa, því þeir sáu, þótt þetta væri bannað, þá hafði Drottinn samt nóg handa þeim að gera, þar sem hin tvö húsin voru opin fyrir öllum; og það ráð var tekið, að þessir allir 7 til samans ættu að minsta kosti að vera í einum bænaranda, en svo var komið sér saman um, að þeir létu búa til auglýsingar, sém

x

Trú

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Trú
https://timarit.is/publication/514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.