Trú - 01.01.1906, Qupperneq 6

Trú - 01.01.1906, Qupperneq 6
86 T R Ú . tilkyntu á hvaða tíma samkomurnar yrðu haldnar í þessum þremur húsum. En nú kom sú spurning, hvort 7 eða 3 ættu að skrifa undir; en af því að einn var farinn, þá var það af ráðið, að þrir skyldu skrifa nöfn sín undir. Svo skrifuðu þessir: cand. theol. Sigurbjörn Á. Gíslason, David Östlund adventistatrúboði og adjudant J. Petersen frá Hjálpræðishern- um. Svo var fundi slitið. Nú gekk alt vel. Samkomurnar byrjuðu á réttum tíma þann 7. jan. 1906, á þessum þremur fyrnefndu stöðum, og blessaði Drottinn þær dásamlega; því þegar spurt var um, hvort nokkrir vildu gefa til kynna, að þeir vildu gefa sig Drottni algerlega, þa voru það ótrúlega margir, sem gáfu sig fram. — Þetta var í Betel. — Hina staðina veit maður ekki eins vel um; en samt komu einhverjir fram í Hjálpiæðis- hernum. Svo kom næsti dagur, og var þá enn nteira af fólki, svo salirnir yrðu þess fyllri. Ræðumaður sá, er stýrði samkomunni í Melsteðshúsi, skoraði á prestana, að þeir opn- uðu kirkjur sínar, og tóku sumir vel í það. Og daginn eftir frétti maður það, að samkomur ættu að verða í dómkirkj- unni, en ekki í Melsteðshúsi. En fríkirkjupresturinn lét ekki til sfn heyra. Nú kom upp annað verra, og það var. að þeir í Melsteðshúsi drógu auglý'ingar sfnar út af listanum, og hofðu þær út af fyrir sig, svo nú fór annar hlekkurinn að svigna f einingarbandinu. En fyrir þá skuld, að dómkirkjan var opnuð, hættu sumir við að koma og tala í Betel þau kvöld, er þeir höfðu lofað, svo nú kom 'tærra skarð í einingarhlekkinn En Drottinn, sem er græðari alla meina, gaf hinum enn meira hugrekki og djörfung til að halda afram, og í Drottins heil- aga nafni var það gert. Árangurinn af því, að hafa flutt í ■dómkirkjuna varð ekki eins mikill. og þeir máske hefðu bú- izt við, því hún var ekki upp á það bezta sótt neitt af þeim kvöldum, sem samkomurnar voru hafðar þar. Og eitt er vfst, að faar voru þær salir, sem höfðu opinberlega gefið sig fram þar. Aftur á móti hafði Hjalpræðisherinn heldur vel sóttar sínar samkomur, og svo höfðu þeir beðið með þó nokkuð .mörgum salum. En í Betel var næstum alt af hús- fyllir, og alt af bættust fleiri og fleiri við, sem vildu byrja að lifa nýju lífi. Sumir af þessum komu algerlega fram, og hafa vitnað um sitt dýrmæta frelsi, en sumir eru enn ekki alger-

x

Trú

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Trú
https://timarit.is/publication/514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.