Ungi hermaðurinn - 01.10.1914, Síða 7

Ungi hermaðurinn - 01.10.1914, Síða 7
tíngi hermaSurinn. 79 sjómenn á leiðinni, og á meðan þeir voru við vinnu sína á skipinu, heyrðu menn þá oft syngja hina alþektu söngva eftir þá Sankey og Moody, á sínu eigin móðurmáli. Þetta er gleðilegt fyrir kristniboðana og alla, sem starfa að trúboði á meðal heiðingja, því þar eru auðsjáanlega að koma fram þau spádómsorð, sem standa hjá Jesaja (60, 5—9): Við þá sýn muntu gleðjast, hjarta þitt mun kom- ast við af fögnuði, þegar auðlegð sjáv- arins hverfur til þín, o. s. frv. Hverjir eru þessir, sem koma fljúgandi sem ský og sem dúfur til dúfnabúra? Það eru fjarlægir strandbúar; sem langar á minn fund, á undan þeim koma skip frá Tars- isborg, sem færa þór sonu þína úr fjar- lægum heimsálfum ; þeir hafa með sór silfur sitt og gull, drotni Guði þínum til vegs, því það er hanu, sem gjörir þig 8vo vegsamlegan. Basilíus mikli. Um Basilíus mikla, biskup í Iíæsarea (f 372), er saga þessi sögð: Það átti að neyða hann til að taka hinni aríönsku játningu, sem neitar guðdómi frelsarans, en hann vildi eigi. Þegar landsherrann þá í nafni keisarans hótaði honum eigna- missi, svaraði Basilíus: Taktu það, sem eg á; það eru nokkr- ar gamlar bækur og slitnir fatagarmar. Og þegar honum var næst hótað líf- láti svaraði hann: Dauðinu getur aldrei orðið mór annað en ávinningur, því að þess fyr kem eg heim til föðursins. Þegar laudsherrann heyrði þesBÍ orð, naælti hann: Með slíkri djörfung hefir enginn ávarp- að mig fyrri: En Basilíus var skjótur til svars: Þá hefir þá líklega aldrei fyr átt tal við biskup. Smavegis. Kærleikurinn er engill, trúin og von- in vængir hans. * * * Trúarbrögð án sjálfsafneitunar eru djöflinum hlátursefni. * * * Gef ekki tungu þinni svo mikið frjáls- ræði, að hún geri sjálfan þig að þræli. * * * Menn lyfta oft upp höttum sínum, þegar þeir mætast; ó, að þeim væri eins tamt að lyfta huga sínum upp til Guðs í bæn. * * * Einhverju sinni töluðu fimm menn saman um, hvaða meðal væri bezt til að útrýma syndinni úr hjörtum mann- anna. Hver hafði sína skoðun. Hinn fyrsti mælti: Að hugsa um dauðann. Annar: Að hugsa um dóminn. Þriðji: Að hugsa um sælu himnaríkis. Fjórði: Að hugsa um kvalir helvítis. En Bá fimti mælti: Að hugsa um Jesú kvalir á krossinum og elsku haus til vor. * * * Guð hefir fórnað sínum elskaða ein- getna syni fyrir þig. Hverju hefir þú fórnað honum aftur. --------sse----------

x

Ungi hermaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.