Ungi hermaðurinn - 01.12.1917, Síða 5
Jóla- Ungi Herroaðurinn.
93
þess að þeir tilbáðu barnið, þrátt
fyrir fátækt þess, — það var
trúin.
Já, mikil var trú þeirra, og
þess vegna gáfust þeir ekki upp,
en leituðu þar til þeir fundu, og
þrátt fyrir að þeir sáu ekkert
stórt, er þeir loksins náðu tak-
markinu, raskaðist trú þeirra ekki.
Það er nú hið nauðsynlegasta
fyrir oss sem lifum, að við eins
og vitringarnir finnum Jesúm
Krist. Það gildir ekki einungis
fullorðna fólkið, heldur líka börn-
in og unglingana, Já, þvi fyr
sem maðurinn finnur Jesúm, því
betra. Þvi Jesús er einmitt hinn
góði og sanni vinur og leiðsögu-
maður, sem hinir ungu þurfa með,
til þess að rata gegnum lifið, og
ná til föðurhúsanna hjá guði.
Það er miklu léttara fyrir þig
að finna Jesúm en það var fyrir
vitringana, og það er miklu létt-
ara fyrir þig að trúa á hann en
það var fyrir þá.
Ekki þarft þú að ferðast langa
leið. Nei, þú getur leitað hans
og fundið hann á heimili þinu,
ef þú biður hann þar í anda og
sannleika. Ekki þarft þú heldur
að efast um vald Jesú og dýrð.
Þú hefir lesið um almætti hans
og dýrlegan sigur yfir dauða og
Hann er fæddur, fædduT góði frelsarinn,
friður er um jiirðn, sæ og himininn.
Látum glaðir ljúfan lil,óma lofsönginn.
Lausnarinn er meðal vor.