Ungi hermaðurinn - 01.06.1920, Side 3

Ungi hermaðurinn - 01.06.1920, Side 3
Ungl hcrmaSurlnn 43 En hvernig öðlaBt uuglingarnir trúna? Páll segir í bréfi sínu til Róm- verja 8. ÍT., að trúin komi fyrir heyrnina — fyrir að heyra Guðs orð. Komið þið unglingar, þar, sem Guðs orð er haft um hönd? Venjulega er það ekki liaft um hönd í danssölunum, í kvikmynda- húsunum, og heldur ekki á iþrótta- stöðunum. Eg gekk yfir íþrótta- svseði kvöld eitt, þar sem nokkr- ir stórir drengir voru kófsveittir við knattspyrnu, en — æ, hvað þeir bölvuðu. Nú, sjáið þið til, unglingar — líkamleg, æfing er til lítils nýt, en guðhræðslan er til allra hluta nytsamleg. En þá verðið þið að koma þar sem Guðs orð er haft utn hönd, og varðveita það svo í góðu og siðsömu hjarta. Já, þá skeður hið mesta kraftaverk þeg- &r ein sál snýr sér frá myrkrinu «1 ljóssins. J. Harlijk. --------g»»<e=> —---- PaMíahsami, Kómverskur læknir var eitt sinn á gangi með vini sínum um fátækruhverfi borgarinnar. Þá hom kona nokkur, sem hafði fal- ^ sig bak við tré, skyndilega til ^eirra, og rétti fagran fjóluvönd lækninum, og flýtti sér burt. Hún var fátæklega klædd, og þegar læknirinn festi fjólurnar á brjóst sér án þess að segja eitt orð og án þess að gefa konunpi nokkuð fyrir þær, undraðist vinur hans og ætlaði að flýta sér á eftir kon- unni til þess að gefa henni aura, en læknirinn aftraði honum og sagði: »það myndi að eins særa hana«. Því næst sagði hann vini sínum, að sér hefði tekist að bjarga barni hennar, sem var veikt af barnaveiki. Hún var á- kaflega glöð og þakklát, en pen- inga hafði hún enga, og hún fór þess vegna snemma á fætur á raorgnana og týndi fjólur, sem hún á hverjum degi kom í veg fyrir hann með. Fyrst ætlaði læknirinn að borga honni þær, en augnaráð hennar kom honum til þess að liætta vð það, »eg vogaði ekki að gefa henni pen- inga«, sagði hann um leið og hann hagræddi fjólunum með rae8tu nákvæmni. »Og þetta gieður þig virki- lega?«, spurði vinur hanns. »Já, sannatlega, þær fylla starfs- dag minn af unaðslegum ilmi, þær eru sólargeislar sem verma mig, já, þær eru mér meira virði en gjafir ríku sjúklinganna minna, því þær koma mér í samræmi við fagra sál«.

x

Ungi hermaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.