Ungi hermaðurinn - 01.11.1920, Blaðsíða 2
82
Ungi hermaðurinn.
Góður drengur
Á afmælisdaginn var Óla litla
gefinn flugdreki, knöttur og lítill
bogi. Af öllum þessum munum
hafði hann mikla ánægiu og gleði,
því að hann hafði lengi langað
til þess að eignast þá. I tóm-
stundum sínum lék hann sér að
þessum leikföngum sínum
En samt þótti honum mest
gaman, þegar félagar hans heim-
sóttu hann og tóku þátt í leikun-
um. Þegar flugdrekinn fór hátt
upp í loftið, eða þegar knöttur-
inn þaut eins og elding, eða -þegar
skotið var til marks með bogan-
um, var mikill fögnuðurinn í
flokki drengjanna.
Síðar um daginn komu vinir
Óla aftur til þess að leikg sér
við hann. Óli fór með þeim út
úr garðinum þar sem hann lék
hermann, en skömmu síðar fór
að hvessa. Og það færði drengj-
unum nýtt fjör, þvi að það hafði
ekki hvest í þrjár vikur.
»Flýttu þér að ná í flugdrek-
ann, Óli«, kölluðu drengirnir.
>Nú hvessir svo vel. Nu hlýtur
hann að fara hátt upp í ioft«.
Óli flýtti sér upp stigann til að
sækja flugdrekann. flann kom
niður aftur að vörmu spori og
sagði: »Eg get ekki fengið flug-
drekann strax, hann hangir inni
i svefnberberginu hans pabba, en
pabbi sefur nú sem stendur og
eg vil ekki vekja hann«.
»Sætku þá bogann, og svo
skulum við skjóta til marks«.
»Já, það verður gaman«, sagði
Óli, og hljóp inn aftur.
En Óli kom tóinhentur í ann-
að sinn.
»Eg get ekki heldur fengið
bogann, mamma mín hefir lokað
hann niðri í dragkistunni sinni,
og nú sem stendur situr hún
við að skrifa bréf, en eg vil
ekki gera henni ónæði á meðan«.
Þá sögðu drengirnir hálf gram-
ir: »láttu okkur þá að minsta
kosti fá knöttinn til að kasta á
milii okkar Óli fór inn aftur í
þriðja sinn, en kom enn tóm-
hentur út. »Við verðum líka i
þetta sinn að vera án knattarins,
af því að litla systir nfln situr
í vöggunni og leikur sér að hon-
utn, og eg vil ekki taka hann frá
henni, því að • þá fer hún að
gráta*.
Þetta þótti drerigjunum miður
gott og kölluðu:
»þú ert aumi asninn, Óli« !
Óli svaraði vingjarnlega:
flversvegna reiðist þið mér
fyrir þetta. Getum við ekki verið
án þess að leika okkur að þess-
um hlutum núna og gert heldui'
eitthvað annað?«
Finst þér ekki hið sama og'
Óla litla, lesari góður?