Ungi hermaðurinn - 01.05.1921, Qupperneq 2

Ungi hermaðurinn - 01.05.1921, Qupperneq 2
34 Ungl hermatSurlnn. Vesalingurinn. A götuhorni einu í Lundúnum hafði Hjálpræðiaherinn mindað hring utanum 5 ára gamla Btúlku, sem stóð upp á stól. Kapteinninn hjelt í hendina á henni á meðan hún söng »Eg veit það Ijóssins landt. Áheyrendurnir höfðu verið tals- vert órólegir en undir eins og Winnie fór að syngja varð dauða- þögn, og þó voru margir, bæði menn og konur drukknir. Kona ein, talsvert drukkin horfði á barnið með blóðstorknum tárvot- um augum. önnur kona, sem stóð hjá henni sagði: »Ef eg ætti svona elskulegt barn, þá held eg að eg myndi reyna að lifa heið- arlegu lífi, það er ausjeð að vesl■ ingurinn, hefir við skort að búa«. »Þegiðu, eg á barnið!* svaraði sú með rauðu augun, því næst þrengdi hún sér inn í hringinn, lagði hendurnar um hálsinn á litlu stúlkunni og fór að gráta. Kapteinninn fylgdi móðirinni og barninu heim í samkomusal- inn, og vísaði veslings drykkju- konunni til hans, sem einn brýt- ur bönd syndarinnar. Seinna var litla stúlkan líka verkfæri í hendi Guðs til þess að leiða föður sinn til frelsarans, og nú eru þau öll þrjú liðsmenn í Hjálpræðishernum. Góðar lífsreglur. maður nokkur setti sjer þessar lífsreglur. 1. að taka ekki þátt í ^neinu ósæmilegu tali, heldur sýna alvöruí öllu, og yfirvega grand- gæfilega orð sín, með því að það er ætíð syndsamlegt að nota mörg ónauðsynleg orð. (Matt. 12, 35-37; Lúk. 6, 45.) 2. Að leitast stöðugt við með ræðu sinni, að vera öðrum til uppbyggingar. (Eóm. 15, 1-2.) 3. Að vera sívakandi, og nota viturlega sérhvert tækifæri til þesa að vera Drottni til dýrð- ar, og vekja kærleika, virð- ingu og löngun eftir honum bjá öðrum, svo að þeir fái líka að þekkja frelsara sinn. 4. Að tala aldrei ilt um nokkurn mann, nema sannleiksástin og bróðurkærleikurinn krefjist þess og þá aðeins með þess- um skylyrðum: a. Að yfirvega fyrst hvort ekki væri ráðlegra að tala fyrst við viðkomandi per- sónu sjálfa. (Matt. 18, 15-17.) b. Að segja aldrei það um annan mann, sem hann gæti ekki sagt við hann sjálfan.

x

Ungi hermaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.