Ungi hermaðurinn - 01.03.1924, Blaðsíða 8
24
Ungi hermaðurinn.
1.
Lag: Ástar faðir himinhæða.
Barnaskaians blítt með rómi,
Borin fram af hjartans yl,
Stígur bæn í hreinum hljómi
Himinhæða ljóssins til.
Þessi salar 'kærust kynni,
Komnir þar sem erum nú.
Séu’ návist signuð þinni,
Sonur Guðs, það bænheyr þú.
Hér þar námsins fyrstu fræin
Falla í ungan hugar reit,
Geisladögg og gróður blæinn,
Guð, frá himni þínum veit,
Virztu í blessun þú að þróa
Það, sem er í kærleik sáð,
Og þess ávöxt öld lát fróa
Otalfalt af þinni náð.
2.
Lag: Vov at staa som Daniel.
Set þér háleitt mark og mið,
Manndómsbogann spenn;
Gakk í þraut og drýgðu dáð,
Sem Daniels hreystimenn.
Kór:
Berstu djarft, sem Daníel,
Drottinn hjálpar þá;
Stíg á stokk, vinn heit sem hann,
Hlusti hver þar á.
Ragar sálir sín og viss
Svikagjöldin fá,
Þær, sem renna krossi Krists
Og köppum Daníels frá.
Margur hraustur hels á slóð
Hné við sverðaleik,
Þar sem beint að vígi vóð
Hin vaska Daníels sveit.
3.
Besti vinur þinn á jörð er Jesús,
Jafnan þegar mætir sorg og neyð;
Hann fær þerrað heitust tár,
Hann fær læknað dýpstu sár.
Besti vinur á jörð er Jesús.
Kór:
:,: Besti vinur á jörð er Jesús
Leiti eg hans hjálpar hér,
Hann mig ber á örmum^sér.
Besti vinur á jörð er Jesús.
Ó, hvað Guðs son góður er roér
vinur!
Gegnum tár mér skín hans frið'
arsól.
í hans skauti eg mig fól,
Ó, það blessað friðarskjól!
Besti vinur á jörð er Jesús.
Útg. og ábm.: S. Grauslund.
ísafoldarprentszniöja h.f,