Templar - 30.03.1912, Blaðsíða 3

Templar - 30.03.1912, Blaðsíða 3
T EMPLAR. 19 una og fullkomna því bæði fjölda og gæð.i starfanna. Og það sem enn mikilvægara er, þessi líkamlegi og andlegi styrkur flyzt sjáanlega í vaxandi stigum frá kyni til kyns. Alt þetta mun svo greinilega magna sam- kepnis-öfl þjóðanna á heims-markaðin- um, að ég hika eigi við að staðhæfa: Sú þjóð, cr fyrst losar sig undan hinum skað- legu afleiðingum áfengis, mun með því ná óyggjandi yfirburðum yflr aðrar þjóðir, í hinni friðsamlegu, en þó áköfu baráttu fyrir tilverunni. Ég vona að landið okkar verði það fyrsta, er kemst í skilning um þessa yfirburði og tryggir sér þá.“ 4. Fingur ættjarðarástarinnar. Þessi orð ríkiserfingjans sænska eru töl- uð í nafni heilsufræðinnar, ættgengisins, hagfræðinnar og ættjarðarástarinnar, og hljóma í samræmi við orð Þýzkalands-keis- ara i febrúar 1911: „Sú þjóð er neytir minsts áfengis, mun sigra í orustum fram- tíðarinnar". — Bandaríkjamenn, er mest hafa stuðst við rök skynsamlegrar sjálfs- ástar í baráttunni gegn drykkjukránum — óvinum heilsu og atvinnu-velvegnunar —, ættu af leiðtogum annara landa að læra að þekkja hinn veigameiri st.yrkleik þeirra sannana, sem fluttar eru i nafni ættgengis, ættjarðarástar og mannúðar. Einnig í Frakklandi er ættjarðarástin fremst. Af því að Frakkar eru „feig þjóð" festir stjórn- in upp augiýsingar, er vara jafnvel við stöðugri drykkju — sem leiðirtil ofdrykkju—, „vegna framtíðar þjóðarinnar". 5. Fingur maunúðarinnar. Og vegna þess að 80 af hundraði þeirra, er buðu sig fram í Búa-ófriðinn, reyndust ó- hæfir.tekur Stóra-Bretland lika upp rök þjóð- rækninnar. í hundrað brezkum borgum eru „eftirskipun bæjarstjórnarinnar" hengd- ar upp varnaðar-auglýsingar með fyrirsögn- inni: „áfengisnautn og eyöilegg- i n g 1 í k a m a n s“, er bæta við þjóðrækn- isrökin öðrum enn þá beittari: úrætt- i n g kynkvíslanna.— Eins og Hobson þing- maður sýnir fram á í hinni miklu ræðu sinni umáfengi,sem „Eyðilegginguna miklu“, þá er eyðilegging mannflokka um heim allan í vændum, ef áfengismarkaðurinn stækkar. En aðáltilyangur heimsþings þess, er brugg- arar héldu nýlega í Cliicago, var, að hrinda af stað bjórsölu i Kina, Kóreu og Japan oy öðrtnn Vónduni, er enn hafa hlotið minni bölvun af þessu þjóða-eitri en lwítu lcyn- flohkarnir. Hreyfing þessi, í þá átt að færa út bjór- drykkju-takmörkin, — líkt og þegar reynt hefir verið að breiða mansalið út um ný svæði — ætti að reisa alla Guðs kristni sem einn mann gegn þessum svöllurum Alkó- hóls —, hún ætti að leggja að velli óvin þenna, er býður Guði og mönnum byrgin. e—r a—t þýddi úr »20//i Century Quarterlye, febr.h, 1912. llarnablaöiö »ÆSH./k]lI« vill komnst inn á öll bnrnaliciuiili á íslnndi. Pnntið liniin i nfgreiðsluniii Hcrgstaðastneti 8. Verd nrg. 1 kr. 20 nnr. Útsölumenn, sem eigablöð at' 22.árg. Tpl. eru beðnir að endursemla þau. Ný stúka. Föstudaginn 9. febr. s.l. stofnaði br. Guðmundiir Einarson, preslur, stúku í Ólafsvík með 17 félögum og 1 aukafélaga. Stúkan hlaut nafnið »Mjöll« og er nr. 167. Þessir voru kosnir embættismenn og settir í embætti: Æ.T. str. Sigríður Olíversdóttir V.T. br. Axel Clausen Ritari — Ilallgrimur Hermannsson F.R. — Magnús Guðmundsson G. Guðmundur Guðjónsson Kap. — Gunnleifur Porsteinsson Dr. str. Kristín Haraldsdóltir V. br. Guðmundur Kristmundsson Ú.V. — Ogmundur Jóhannesson A.R. — Forvaldur .1. Egilsson A.Dr. str. Guðbjörg Olíversdóttir F.Æ.T. — Anna Þorkelsdóttir. Kosin nefnd til að semja aukalög fyrir slúkuna og samþykl að næsli fundur skyldi haldinn íimtudaginn 15. febrúar. Stúkan er skipuð góðum og áhuga- sömum meðlimum og er alt útlit fyrir að hún fá miklu góðu komið til leiðar. »Tpl.« óskar stúkunni og meðlimum hennar góðrar framtíðar og heilla í starfinu. Frá útlöndum. Vel svarað. Á fundi er haldinn var í Stokkhólmi núna nýverið um bindindismálið og afstöðu þess, fórust ritara bruggarafé- tagsins sænska svo orð í Jok ræðu sinnar: „Einn okkar mesti konungur sagði einu sinni, er prestarnir gerðust of nærgöngulir: „Svíaríki er konungsríki, en ekki prestakall". Á sama hátt vil ég segja“, sagði ræðu- maður, „gagnvart yfirgangi bindindismann- anna, ei vilja gera Svíþjóð að Good-Templ- arastúku — en það ættum við aldrei að láta viðgangast — sem alt lítur þó út fyrir að það ætli að verða“. Br. dr. Johan Berg- man var mættur á fundinum og svaraði strax: „Ekki vil ég heldur gera Svíaríki að hreinni og beinni Good-Templarastúku; en ætti sænska þjóðin að kjósa sér eitt af tvennu, hvort landið hennar ætti heldur að verða að Good-Templarastúku eða ölkrá, þá er ég í engum vafa um það, að níutí- undu hlutar þjóðarinnar kysu heldur Good- Templarastúkuna. Með öðrum orðum : Þeg- ar á að kjósa um bruggarana og bindindis- hreyfinguna er þjóðin ekki lengur í vafa“. Árangur vinsölubannsins i Færeyjum. — Nú eru sölubannslögin í Færeyjum í end- urskoðun i danska þinginu, segir „Refor- matorn“. Blaðið gerir grein fyrir árangr- inum af lögum þessum: Víninnflutningur hefir fallið úr 24,330 lítrum í 3,100 lítra; brennivíns úr 121.412 lítrum í 54,310 og skattskyldur bjór úr 361,000 í 11,450 lítra. Ef þessu er svo breytt í hreint áfengi, þá verður það úr 4,23 lítrum alkóhóls á mann á ári í 1,54 ltr. Brennivínsbann kemur í gildi í héraðinu Rohrbach í Sviss frá 1. n. m. Það er fyrsta sveitarfélagið í Sviss sem hefir tek- ið þessa ákvörðun. f Br. Benjamin Franklin Parker, Fyrv. Alpjóða-Ritari. Hann dó að heimili sínu í Milwaukee í Wisconsin 24. jan. s.l. 72 ára að aldri. Hann lá að eins í fáa daga, segir „Int. Good-Templar“, en hafði kent heilsubilunar i nokkra mánuði. Hann var fæddur 27. júlí 1839 í Conn- eaughtville í Pensylvaníu. Hann lagði stund á hernaðarlist og að loknu námi náði hann ofursta-tign. Hann tók þátt í stríðinu milli Ameríkumanna og Spánveija á Cuba. Hann var meðlimur i mörgum félögum. Hann var frímúrari og mikilsmetinn innan þeirra vebanda í Bandarikjunum; sem Good- Templar náði hann þó mestri hylli og var þektur um heim allan; var ritari Alþjóða- Hástúkunnar i 23 ár, ritari Stórstúkunnar í Wisconsin í 30 ár og ritari Lifsábyrgðar- félags Good-Templara í 25 ár og um nokk- ur ár ritstjóri „International Good-Templ- ars“. Ýmsum Good-Templurum hér á landi er hann kunnur fyrir afskifti sín af reglumál- um, sérstaklega þeim er voru ritarar Stór- stúkunnar hér á þeim tíina er hann gegndi ritarastörfum Hástúkunnar, þeim br. Indr. Einarssyni og Borgþór Jósefssyni. Br. Parker var lipur maður og samvinnu- þýður og eignaðist, þvi marga persónulega vini í ýmsum löndum með starfi sínu í Reglunnar þarflr. Brostnir hlekkir. Hinn 26. des. f. á. andaðist str. Guðrún Björnsdóttir, ljósmóðir, í Hnausakoti í Húnavatnssýslu, eftir 8 ára farsæla hjóna- bandssambúð við mann sinn, br. Rögnvald H. Líndal. Banamein hennar var lífhimnu- bólga. Hún var fædd 23. marz 1874 og því að eins tæpra 38 ára. Þau hjónin voru ein af stofnendum stúkunnar „Baldursbrá“ nr. 128 f Miðfirði og ein af helztu og beztu styrktarmönnum hsnnar; er því söknuður mikill að str. Guðrúnu sál. fyrir bindindis- og bannmálið, er hún bar svo mjög fyrir brjósti og vann fyrir með miklum áhuga, björtum vonum um blessunarríka ávexti þess máls fyrir land sitt og þjóð og með þeirri festu, einurð og stillingu, sem henni var lagin, því hún var valkvendi og mik- ils metin af öllum þeim, er hana þektu, og þeir voru margir, því hún var heppin og skyldurækin Ijósmóðir þar nyrðra um 10— 11 ára skeið. Hún lét eftir sig 2 börn á unga aldri, sem við fráfall hennar eru svift ástrikri og umhyggjusamri móður. Maður hennar og börn, ásamt fjólda góðra vina, geyma minningu hennar með sökn- uði og þakklæti fyrir dáðrikt æfistarf, sem því miður endaði svo skjótt. Óskandi væri að margar konur, slíkar sem str. Guðrún sál. Bjarnadóttir, findust með þjóð vorri og gerðu ábugamál hennar — bindindis- og bannmálið — að áhugamáli sinu. Reykjavík, 9. marz 1912. J.

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.