Templar - 01.10.1929, Side 4

Templar - 01.10.1929, Side 4
4 TEMPLAR er það um allan þorra almennings í nðgrannalöndum vorum. 1 sjálfu sjer er það eðlilegt, að þau blöð, sera ákveðna stefnu hafa í áfeng- ismálunum, sjerstaklega í bannmálinu, hagi sjer þannig. Pað er vel skiljanlegt, að þau geri sjer far um að birta eink- um þær fregnir, sem styðja þann mál- stað, er þau hafa tekið að sjer. En nú er það svo um allan fjölda almennra blaða bæði hjer á landi og í nágranna- löndum vorum, að þau eru eða að minsta kosti iátast vera hlutlaus i þessu máli. Ætti þeim því að vera ant um að birta sem rjettastar og hlutlausastar frjettir um þessi efni, og jafnt frá báð- um hliðum. En til þess að það mætti veiða, þyrftu þau að hafa sambönd, sem trygðu það, að þau feugju alhliða fregnir, og þær sem árciðanlegastar. Og dálítið »kritisk« þyrftu þau að vera á þau skeyti, sem frá Ameríku berast, láta heldur dragast að birta grunsam- leg skeyli, heldur en að eiga það ef til vill á hættu að þurfa að leiðrjetta þau eða afturkalla. Það hlaut t. d. að vera eitthvað bogið við áðurnefnt skeyti um heimabruggið, og hefði því verið rjett- ast að geyma það, þangað til áreiðan- legri og greinilegri upplýsingar iengust. Ðrostnir hiekkir. Hinn 12. september andaðist systir Kristin Gestsdóttir, Þingholtsstr. 13 í Rvík, fjelagi st. »Verðandi« nr. 9. Hún var fædd 20. okt. 1851 á Htiði á Áiftanesi, en fluttist á unga aldri til Reykjavíkur og dvaldi þar jafnan síðan. Árið 1900, hinn 18. desember, gekk hún i »Verð- andia ásamt mauni síoum, Þorsteini sál. Guðmundssyni yfirliskimatsmanni, og þótti stúkunni það góður fengur í þá daga og reyndist svo. Kristín sál. var til dauðadags trúr og dyggur fjelagi stúkunnar og vann henni það lið, er bún mátti, þótt heilsulasleiki hamiaði henni frá fundasókn mörg hin síðari árin. Blessuð sje rainning hennar. Hinning;arsit|öld Minningarsjóðs Sigurðar Eirikssonar voru prentuð í september og fást hjá umboðsmönnum stúknanna úti um land og á skrifstofu Stórstúkunnar i Reykja- vík. Spjöldin eru mjög smekkleg. Inn- an í dökkurn grunni er hringur og i honum merki Reglunnar prentað með daufari lit, og áletrun með nafni og dánardægri hins látna. Ættu Templar- ar að hafa það hugfast að nota aðeins þessi spjöld, er þeir vilja minnast lát- inna vina. Með því vinna þeir góðu rnálefni gagn um Ieið og þeir inna af hendi ræktarskyldu sína við hina fram- liðnu og eftirlifandi ástvini þeirra. Vísis-kaffl g'erir alla glaða. Fæst livergi neina í Vorsl. „Yisir*. Laugav. 1. Rvík. Marteinn Einarsson & Co. Reykjavík. Sími 315. Höfum ávalt fjölbreyttar birgðir af allskonar vefnaöarvörum — með laegsta verði. —■ Vörur sendar gegn póstkröfu um alt land. Ifeinisóluiir. Framkvæmdanefnd Stórstúkunnar hef- ir í októbermánuði heimsótt allar þær undirstúkur í Reykjavík, sem fundi hafa haldið, en það hafa þær allar gert að einni undantekinni. 1 sambandi við lieimsóknirnar hafa ýms Reglumál verið rædd, og viða af miklu fjöri og áhuga. Fundir eru þó fremur fásóttir enn í flestum stúkunum, en von um að úr rætist, þegar fólk hefir tekið sjer fasta vetrarsetu eftir tvístringinn, sem jafnan er um sumartimann. Hjer i blaðinu birtist erindi, sem br. sira Björn Þor- láksson S. G. L. flutti í einni stúkunni, þegar frkvn. var þar í heimsókn. llúsabyggiugar standa yfir í Hafnarfirði og Nprðfirði. Hafnarfjarðarslúkurnar byggja viðbót við hús sitt og hafa því ekki byrjað fundahöld enn i haust. En Norðfjarðar- stúkan »Nýja öldin« seldi hið eldra hús sitt, sem henni var orðið ófull- nægjandi, og byggir frá grunni. St. »Frainför(( nr. 6 í Garði starfar ágætlega og tekur inn nýja fjelaga á bverjum fundi í haust. i'ý stúka er stofnuð á Hánefsstaðaeyrum við Seyðisfjörð. Nánari fregnir í næsta blaði. Áfeii|s;issinyg5uniii í Svíþjóð er orðin alvarlegt áhyggju- efni. Andbanningablöðin þar í landi gerðu í fyrstu lítið úr henni, vildu ó- gjarna við það kannast, að slíkt ætti sjer stað nema í baunlöndum. En nú er svo komið, að þau flytja hvert öðru lengri og ákveðnari greinar gegn þessu at- hæfi, og telja ástandið alveg óviöunandi. Forsæiíspáðherrann á Hollandr, Ruys de Beerenbrouck, er einn meðal fremstu starfsmanna í alþjóða-bindindisbaráttunni. Vigfús Guðbrandsson — klæðskeri. — Sími 470 — Símn. Vigfús — Aðalstr. 8. Fjölbreytt fataefni. 1. fl. saumastofa. Templarar og lesendur Templars kaupið trúlofunarhringana þjóðkunnu, belti, millur, nælur, hnappa, steinhringa og margt fleira hjá jöni Sigmundssyni gullsmið, Laugaveg 8. Reykjavík. Sími 383. Söluturninn í Rvík hefir mikið úrval af allskonar sælgæti. Avextir, spil, kerti, gORdrykkir, ■naltöl, reyk|arpí]nip o. m. fl. Hraðsöluverð á öiiu. Leir- gler- og Postulínsvörur. Eirvörur. Látúnsvörur. Fldiiúsáliöldt og Borðbúnaður. Skilvindur og strokkar. Fjölbreyttait úrval. Læ^st verö. Yerslun Jóns Þörðarsonar Reykjavík. Blikksmíðavinnustofa J. B. Pjeturssonar, Reykjavík. Talsími 125. P. O. Box 125. Siyðjið innlendan iðnað, og kaupið hjá ofangreindri vinnustofu, sem uppfyllir kröfur nútímans með vandaðri vinnu, lágu verði og ftjótri afgreiðslu. Templarar! Gerið bókakaup yðar ogrltfanjfa við bókaverslun Sfgf. Eymundssonar AniturRtr. 18. Iteykjavík. Ritstjórn : Framkvæmdanefnd Stárstúku íslands. Prentsmiðjan Gutenberg

x

Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.