Templar - 01.11.1929, Síða 1

Templar - 01.11.1929, Síða 1
XLII. árg. Reykjavík, Nóvember 1929. 11. blað. + Br. Ólafur Rósenkranz. Fæddur 26. júní 1852. Dáinn 14. nóv. 1929. Fremslur i leik. Ólafur Rósenkrarz var frændi Jóns Guðmundssonar ritstjóra Pjóðólfs, sem tók hann að sjer ungan og ól hann upp hjer í Reykjavík, milli 1860 — 65. Þá var gott til leikvallar á götum Reykja- víkur, og Ó. R. var jafnan þar sem aðrir unglingar ljeku, sagði fyndnisyrði og var jafnan fremstur i hverjum leik. Á götunum sást að eins stöku maður við og við og að haustinu komu 6 eða 7 móvagnar ofan frá mómýrinni og niður í bæinn. Rað voru móvagnar Valda i Skólabænum. Reir vagnar fóru hægt. Ólafur bar af öllum jafnöldrum sinum að kröftum og mjúkleik og var jafnan fremstur í hverri hrið. Arnaraugun i Hvila húsinu. Ólafur varð stúdent 1874 og komst aö verslun, sem kölluð var Hlutaveltan. I*ar kyntist hann nokkuð drykk eins eins og þá var tilt, ekki sist meðal verslunarmanna. En »Veltan« valt, og hann, sem var giftur maður, álti í vök að verjast fyrir fjeleysi. En Steenberg flmleikakennari hafði fengið lausn i náð, og Hilmar Finsen átti að útvega ieikflmiskennara og þótti ekki hlíta, að fá nú aftur danskan undirforingja til að kenna leikfimi. Hann sá það, sem áreið- anlega var rjett, að af öllum hjerlend- um mönnum mundi Ó. R. vera hæf- astur til starfsins, kaliaði hann til sín, og þeim samdist um það að Ó. R. fengi staiíið gegn því að hann hælti að drekka. Það mun satt vera að eng- inn stjórnandi landsins hafi sjeð betur Út unga menn en Hilmar Finsen. Ó. R var fimleikakennari með ýmsum skrif- stofustörfum í 35 ár. Stórtemplar: Mikið af Gissuri hvita, en of litið af Hjaíta Skeggjasyni. Ó. R. gekk í Góðtemplararegluna, þegar »Verðandi« nr. 9 var stofnuð 3. júlf 1885. Hann gegndi árum saman erfiðustu embættum í stúkunni — æ. t. og fj.rit. Utan Reglunnar var hann um 15 ár, en gekk inn aftur með endurinn- töku á fertugsafmæli »Verðandi« 1925. Lengi voru kunningjar hans að dýrka bann til að láta kjósa sig i Stórstúk- una, og það höfðu þeir að lokum (1889). Hann var kosinn Slórtemplar 1891 og var það til 1897. Sama tfma var hann ritstjóri blaðsins Islenski Good-Templar, og vandaði mjög til. Hann lagði á- herslu á það, að G.-T.-Reglan vœri Regla, ekki fjelag, og hann var ekki áfram um að fjelagsmönnum fjölgaði. Hann leit svo á fjelagið, að það væri einskonar bindindis-munklífi. Reglan væri of góð til þess að mörgum væri hleypt þar að. Þó hafði sjálfur hann, meðan mestur útbreiðsluhugurinn var í »Verðandi«, stofnað stúkur bæði á Eyraibakka og Stobkseyri. Reglan hafði fyrir fylgi Guðlaugs Guðmundssonar fengið 800 króna styrk á ári til reglu- boðunar. Árni Gislason leturgrafari ferð- aðist fyrir Ó. R. í 4 ár, en þótt Árni væri hinn besti Regluboði, þá var hann orðinn of gamall. Hann gat ekki ferð- ast nema með strandferðaskipunum; var i landi meðan skipin stóðu við, en gat aldrei náð saman fundi; en hann töfraði alla, sem hann náði tali af. Ó. R. var á sfðustu árunum, sem hann var Stórtemplar, farinn að tala um að stofna bindindisíjelög, en fekk enga á- heyrn hjá Stórstúkunui. — Það má segja um Ó. R., að hann hafði mikið af Gissuri hvita til að standa fyrir Reglunni, en of lftið af Hjalta Skeggja- syni til að þoka henni áleiðis. Hjúskapur. Ó. R. giftist 1872 Hólmfríði Björns- dóttur Porvaldssonar í Holli. Hólmfrið- ur sál. var höfðingskona og fslensk i hug og hjarta. Hún kunni allar hann- yrðir og vann mjög að þeim; hún var að sinu leyti eins rösk og rnaður henn- ar. Pau áltu þijú börn: Björn kaup- mann bjer í Reykjavík, Hólmfríði, eig- anda og forstöðukonu kafflbússins „Upp- salir“, og Jón lækni, sem var háskóla- ritari á undan föður sínum, en er nú dainn fyrir nokkru. Hornístöðin. Ó. R. var ávalt vinsæll maður og óvinalaus. Öllum var kunnur röskleiki hans, og sá röskleiki varð honura til lýðhylli hjer í bænum. Maður kom til Hólmfríðar konu hans og vildi finna hann. Hún spurði, hvað hann vildi bonum. Maðurinn svaraði í spaugi: »Eg ætla að slátra hon- um«. »Þjer gerðuð þá ekki annað á meðan«, svaraði frúin. Maðurinn við- urkendi það fullkomlega. — Ólafur Rósenkranz hafði hinar bestu ástæður tii að halda sjer fímum og ungum. Hann kendi ungum mönnum leikfími f fullan mannsaldur, og æskan smitar út frá sjer. »Gerðu það sama sem unga fólkið gerir«, segja Englendingar, »og þá muntu halda lengi í æsku þína«. Ó. R. glfmdi hraustlega við Elli kerl- ingu langt fram yfir sjötugt. Hann gekk teinrjettur og teygjanlegur á götunni, stakk aldrei höndum í vasa, og ávalt var hann staflaus. Hann gekk á undan tveimur mönnum á götunni, og annar þeirra segir: »Hve le^ngi skyldi hann Ó. R. ganga svona rösklega?«. )>Hann gerir það liklega þangað til hann deyr«, svarar hinn. »Ef hann deyr þá nokk- urntima«, sagði sá fyrri. — Aldurinn bugar alla, og flestir verða einhvern- tima að ferðast í hornístöðunum hans Hallgrfms Pjeturssonar. Prátt fyrir all- an fímleika og röskleika 0. R. fekk hann fyrir 2 — 3 árum áfall, og varð aldrei jafngóður. Sjúkleikinn ágerðist eftfr því sem stundir liðu, og nú er þessi vaski hermaður fallinn, 77 ára að aidri. Indr. Einarsson. Misseramót. Erindi flutt I st. »Verðandi« priðjudaginn 5. nóv. 1929. Kæru fjelagssystkini! Pað þarf ekki að taka það fram við nokkurt ykkar,— af þvf að ykkur öllum er það vit- anlegt — að fyrir nokkrum dögum hefir tímans sístreymi flutt okkur enn einu sinni yfir tímamót — tímamót sumars og vetrar. Pó hann, sem er konungur tímanna, loki hljóðlega lfðandi misseri og opni jafn hljóðlega dyr komandi misseris, þá fara tfmamótin fram hjá fæstum svo, að ei sje eftir þeim tekið. í meðvitund vorri eru þau sem mflu- steinar eða kílómetramerki við tímans þrotlausa alfaraveg. Samt er það með ei litlum mismun hve djúpt tímamótin hafa mótast i vit- und manna og tilfinningum. Að þessu leyti ná áramótin til miktu fleiri en misseramótin. öll menningar- lönd minnast áramótanna, hvert á sína vísu. Misseramótanna gætir lítið eða ekkert ineð öðrum þjóðum. Við íslend- ÍDgar eigum einar allra þjóða — það eg best veit — sumardaginn fyrsta sem tyllidag. Og með okkar þjóð ber miklu

x

Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.