Templar - 01.11.1929, Side 4

Templar - 01.11.1929, Side 4
4 TEMPLAR legt, er nýir reitir eru teknir til rækt unar. Fer aldrei hjá því að eitthvað gott spretti þar upp, sem niður er sáð 1 trú, von og kærleika, enda þótt sáð- mennirnir sjeu fáir til að byrja með. Frá ChiSe. Það er sjaldgæft, að frjettir berist um bindindisstarfsemi í Suður-Ameríku. Þó er það svo, að jafnvel þar er unnið að takmörkun og útrýmingu áfengis. í Chile starfar »Liga Nacional contra ei Alkoholismo« að þessum málum. Hefir fjelagið aðal-bækistöð sína í Santiago og gefur út mánaðarrit, »Vida Nueva«. Yfirstandandi árgangur er 4. árg. Fjelagið naut siðastliðið ár 25 þús- und dollara styrks úr ríkissjóði. Er fjeð notað sumpart tii bindindisfræðslu, en sumpart til verðlauna fyrir framleiðslu óáfengra vína. Bindindisfræðslan er rekin bæði með prentuðu máli og munnlega. »Vida Nueva« er gefið út í 50000 eintökum, og auk þess mikið af flugritum og smá- pjesum. í skólunum er starfað af kappi að fræðslu í þessum efnum og sjerstök námsskeið haldin í bindindisfræði. Baráttan gegn áfengisframleiðslunni er einn aðaiþáttur starfseminnar. Svo er það i öllum vlnyrkjulöndum, svo sem t. d. Suður-Evrópulöndunum. Að sjálfsögðu getur ekki komið til mála að ætlast til þess, að bændur i slikum löndum hætti við vínberjarækt, sem oft er þeirra aðaltekjulind, og þeir hafa stundað frá barnæsku og forfeður þeirra frá ómuna tið. Er öll áherslan lögð á að beina notkun vfnberjanna inn á nýj- ar brautir, hætta að búa til úr þeim áfenga drykki, en efla tilbúning óáfengra drykkja Og auka notkun vinberjanna á annan hátt, til matay og framleiðslu sælgætis. í Ctiile var i fyrra haldin sýn- ing á þess háttar vörum og verðlaun veitt fyrir bestu framleiðslutegundir, 500 — 1000 dollara. Gekst bíndindisfje- lagsskapurinn fyrir þessu, og er talið, að á þenna hátt þokist smámsaman i áttina að útrýmingu áfengisins. Hlackeiizle King, stjórnarformaður í Kanada, hefir til- kynt, að stjórnin hafi á prjónunuin ít- arlegri ráðstafanir .til að fyriibyggja á- fengissmygl, yfir landamærin frá Kanada til Bandaríkjanna. Verða þessar ráð- stafanir gerðar í samráði við Banda- rikjastjórnina. É Suður-Ástralíu starfa bindindisvinir mjög að bind- indisfræðslu, einkum meðal barna og æskulýðs. Við kosningar, sem fram eiga að fara í mars eða apríl í vetur, verða þingmannaefnin krafin sagna um af- stöðu þeirra til hjeraðasamþykta i á- fengismálinu. tíestu innkaupin á Glervöru, Búsáhöldum og Vefnaðarvöru í BDINBORG Templarar og lesendur Templars kaupið frúlofunarhringana þjóðkunnu, belfi, millur, nælur, hnappa, steinhringa og margt fleira hjá Jóni Sigmundssyni gullsmið, Laugaveg 8. Reykjavík. Sími 383. ÁGENTER ansættes mod höi provision. Skriv straks efter vore agenturbetingelser og skaf Dem en indtækt i disse daarlige tider. BANKIRFIRMAN LUNDBERG & Co. STOCKHOLM C. É Sviþjóð eykst drykkjuskapur ár frá ári. Neysla sterkra áfengisdrykkja hefir aukist um 25®/o slðan 1923, eða með öðrum orð- um um 1 milj. litra á ári. Aukningin er þó margfalt meiri á Ijettum vínum, sem sje 130°/o á siðustu 6 árum. Tala þeirra, sem hafa áfengisbækur, hefir aukist um ca 15%. Eru árlega gefnar út 30000 áfengisbækur til nýrra viðskifta- manna, og er það ekkert smáræði, þeg- ar tillit er tekið til þess, að einungis 50 þús. karlmenn fylla árlega 25 ára aldur. Söluturninn í Rvík hefir mikið úrval af allskonar sælgæti. Avcxtir, spll, kcrtl, gosilrykhir, maltöl, reyhjariiípup o. m. fl. Hraðsöluverö á öltu. Vigfús Guöbrandsson — klæðskeri. — Sími 470 — Símn. Vigfús — Aðalstr. 8. Fjölbreytt fataefni. 1. fl. saumastofa. Bresha stjórtiin sýnir það á ýmsan hátt, að hún er bindindissinnuð, sem síst er að furða, þar sem margir ráðherrarnir eru bind- indismenn, eins og áðnr hefir verið frá skýrt. Chutchill hafði gefið áfengis- kaupmönnum von um, að tollur á áfengi mundi verða lækkaður, ef hann yrði við völd áfram, en nú hefir eftirmaður hans, Snowden, synjaö um aðstoð sina til þess. — Enn er þess að geta, að á- fengisauglýsingar hafa mjög tiðkast á pósthúsum Breta, en nú hefir yfir-póst- stjórnin bannað þær. „Þéim liciður, sem iicíður ber“, segir yfirbiskupinn í Lundúnum í »The Times«. Fer hann mörgum fögr- um orðum um starf og ósjeiplægni bindindismanna á Bretlandi. »Ef þeirra heföi ekki notið við, gætum vjer senni- lega ekki hrósað oss af þeim framfór- um í siðfágun, sem nú eru alviður- kendar og undraverðar taldar«, segir hann. Frá Fng/Iandi. Samanbonð við árið 1913 var öl- framleiðslan á Englandi í fyrra 55%, og framieiðsla sterkari drykkja 42%. Árið 1913 voru 172000 manns á Englandi og í Wales dæmdir fyrir drykkjuskapaibrot, en árið 1928 ekki nema 55000. Mann- dauði af völdum áfengis hafði minkað úr 5000 niður í 2000. Blikksmíðavinnustofa J. Ð. Pjeturssonar, Reykjavík. Talsími 125. P, O. Box 125. Styðjið innlendan iðnað, og kaupið hjá ofangreindri vinnustofu, sem uppfyllir kröfur nútímans með vandaðri vinnu, lágu verði og fljótri afgreiðslu. Templarar! Gerið bókakaup yðar og riífauga við bókaverslun Sigf. Eymundssonar Austurstr. IS. Keykjavýk. Leir- gler- og Poslulínsvörur. Eirvörur. Látúnsvörur. FldliÚMáliöld og lSoróliúnaöur. SJdlvindur og slrokltar. Fjölbreyttast úrval. Lægst verð. Yerslun Jóns Þórðarsonar Reykjavfk. Ritstjórn: Framkvæmdanefnd Stórstúku tslands. Prentsmiójan Gutenberg

x

Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.